Nú er ljóst hvaða stjórnmálasamtök bjóða fram í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk.
Stjórnun sveitarfélagsins er gríðarlega mikilvæg og vandasamt verk. Það er hlutverk bæjarstjórnar að marka stefnuna, móta leikreglur en það er svo stjórnsýslunnar að framfylgja þeim.
Þessi skipting hefur verið óljós þegar flokkar telja það hag sinn að setja sinn efsta mann í framkvæmdastjórastól stjórnsýslunnar. Embætti sem gerðar eru miklar kröfur til þegar það er auglýst – en engar kröfur þegar stjórnmálaflokkarnir velja úr sínum röðum. Engin krafa um menntun og engin krafa um reynslu af slíkum störfum. Samt eru launin þau sömu algjörlega óháð menntun og reynslu.
Hvað er það sem fær stjórnmálamenn til að vilja að hoppa beint í stjórnsýsluna? Launin? Eða þykir það svona fínt að vera bæjarstjóri? Þetta býður hættunni heim, hættu á spillingu þar sem ákvarðanir bæjarstjórans geta skipt sköpum um niðurstöðu í næstu kosningum. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri mjög stórs fyrirtækis með fjölmennt starfslið. Til þess að það gangi vel þarf viðkomandi að láta ráðast af hagsmunum sveitarfélagsins eingöngu.
Vilji stjórnmálamaður vera í framlínunni, vera áberandi leiðtogi, klippa á borða og heilsa bæjarbúum þá býður illa notað æðsta pólitíska embættið, sjálft embætti forseta bæjarstjórnar. Það hlýtur að vera krafa bæjarbúar að pólitíkusar haldi sig við pólitíkina og geta því nýtt embætti forseta bæjarstjórnar sem nokkurs konar pólitískan bæjarstjóra. Hvernig stendur á að því kaupa þarf út ráðgjöf um hin ýmsu mál sem ættu að vera á verksviði bæjarstjóra sem hefur menntun og reynslu? Ekki lofar góðu þegar bæjarstjóri ræður ráðgjafa úr eigin pólitísku röðum. Það má kalla þetta það sem hver vill.
Hér með er skorað á þá flokka sem bjóða fram að skoða þetta mál mjög vel og tilkynna um sínar fyrirætlanir og hvaða stefnu þeir styðji.
Ennþá vitum við ekkert um stefnuskrá flokkanna, hún kemur því miður oft mjög seint. Það er ekki nóg að lofa útgjöldum ef ekkert er talað um fjármál, eitt lang mikilvægasta þáttinn í stjórnun bæjarins. Ef flokkar lofa aðgerðum, spyrjið þið þá hvernig það verður fjármagnað. Fjármunirnir eru takmarkaðir og það þarf að forgangsraða. Það er ekki raunhæft að skuldsetja bæinn mikið og velta útgjöldunum á framtíðar íbúa bæjarins.
Hvaða flokkur mun boða bætta stjórnsýslu? Meira gagnsæi ákvarðana, bætta upplýsingagjöf, raunverulegt samráð og stefnur sem eru ekki aðeins texti á blaði. Fjölmargt í stjórnsýslunni hefur verið gagnrýnisvert, forsendur ákvarðana óljósar, óljóst eftirlit með fjármunum sem veittir eru til ýmissa verkefna og fleira.
Já, það þarf að taka til. En það verður vart gert nema hætt verði þessari undarlegu skiptingu bæjarstjórnar í virka og óvirka eða meiri og minnihluta eins og það er kallað. Hvergi í sveitarstjórnarlögum eru ákvæði um slíkt. Við bæjarbúar kjósum 11 manns í bæjarstjórn og hver og einn er fullgildur bæjarfulltrúi. Og hvernig stendur á því að fólki er raðað upp eftir flokkslínum á fundum bæjarstjórnar? Er eðlilegt að þeir sem mynda meirihluta sitji öðru megin og þeir sem mynda minnihluta hinum megin? Nei. Fyrsta verka nýrrar bæjarstjórnar ætti að vera að afnema þetta undarlega fyrirbæri og freka draga um sæti eins og gert er á Alþingi.
Verum kröfuhörð við frambjóðendur og verðandi bæjarfulltrúa!





