HeimFréttirAtvinnulífFjölmenni við opnun SPAR verslunar í Staðarbergi

Fjölmenni við opnun SPAR verslunar í Staðarbergi

Margmenni var þegar fyrsta SPAR verslunin á Íslandi var opnuð í dag.

Verslunin er í Staðarbergi og kemur í stað Kjörbúðarinnar sem þar var.

Bæjarbúar biðu í röðum eftir opnuninni og stór hópur fólks tengt Dröngum, móðurfélagi SPAR var á staðnum.

Forstjóri SPAR International, Tobias Wasmuht, ásamt Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, klipptu á borði og ávörpuðu gesti áður en fólk þyrptist inn í búðina.

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, ávarpaði gesti og þakkaði starfsfólki fyrir mikla elju og fagmennsku við undirbúninginn. Hún lagði áherslu á að opnunin væri meira en bara ný búð; hún væri upphaf að nýjum kafla sem skrifaður yrði í samvinnu við íslenska neytendur og erlenda ferðamenn. „Í dag opnuðum við ekki aðeins nýja verslun, við erum að opna ný tækifæri, ný sambönd og nýjan kafla,“ sagði Auður. Hún nefndi einnig mikilvægi þess að tengjast nærumhverfinu í Hafnarfirði, en SPAR er þegar orðinn einn af aðalstyrktaraðilum handknattleiksdeildar FH.

Tobias Wasmuht, forstjóri SPAR International, fagnaði komu keðjunnar til „hins fallega Íslands“. Hann rakti sögu SPAR, sem nær aftur til ársins 1932, er það var stofnað í Hollandi, og benti á að keðjan starfi nú í yfir 50 löndum með þúsundir verslana um allan heim. Wasmuht sagði SPAR vera sannkallað alþjóðlegt afl sem teygði sig frá Gullströnd Ástralíu til vesturstrandar Írlands, og frá syðsta odda Afríku norður fyrir heimskautsbaug í Noregi.

Sagði hann orðið „SPAR“ er dregið af hollensku einkunnarorðunum „Samen Werken Profiteren Allen Regelmatig“, sem þýðir lauslega „með samvinnu hagnast allir reglulega“.

„Héðan í frá finnið þið SPAR einnig hér á Íslandi,“ sagði hann og bauð viðskiptavini velkomna til að upplifa nýjungina.

Verslunin í Hafnarfirði er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er stefnt að því að hún þróist áfram í takti við þarfir og raddir viðskiptavina á komandi árum

Fólk sem tengist SPAR og Dröngum framan við nýju verslunina.

Alls eru 13.400 SPAR verslanir í 50 löndum og sagði Tobias Wasmuht í samtali við Fjarðarfréttir að þetta væri samt eins og stór fjölskylda. Verslanirnar eru í eigu fólks á hverjum stað og vísaði hann sérstaklega á íslenskar vörur sem hann sagði mikilvægt að hampa. Sagði hann að nú væru um 10% af vörum verslanirnar sérstaklega framleiddar fyrir SPAR en bjóst við að það hlutfall myndi aukast. Taldi hann mjög mikilvægt að verslanirnar væru hluti af samfélaginu og fólk gæti sótt þangað vörur til heimilisins og jafnframt tilbúinn mat og nesti. Lagði hann sérstaklega áherslu á bakaríið og kaffihornið.

Forstjóri SPAR International, Tobias Wasmuht, tók á móti viðskiptavinunum.
Unnið var hörðum höndum við að innrétta og raða í verslunina í vikunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2