Nýlega samþykkti bæjarráð Hafnarfjarðar „Viljayfirlýsingu um samstarf á svæði Krýsvíkur“, eins og það er orðað í fundargerð ráðsins (dags. 30. apríl), við Hveraberg ehf. Samkvæmt yfirlýsingunni er markmið samstarfsins að móta framtíðarsýn fyrir Krýsuvíkursvæðið og skapa áfangastað fyrir Hafnfirðinga og innlenda og erlenda gesti. Fram hefur komið að fyrirtækið hafi áhuga á að reisa baðlón við Kleifarvatn, hótel og veitingastaði, þótt það komi ekki fram í sjálfri yfirlýsingunni. Undir yfirlýsinguna skrifuðu bæjarstjóri Hafnarfjarðar, f.h. bæjarins sem eigandi Krýsuvíkursvæðisins, og stjórnarformaður Hverabergs, þróunar- og fjárfestingarfélags í ferðaiðnaði.
Óháð því hvort skipulag og uppbygging á Krýsuvíkursvæðinu er vænlegur kostur fyrir sveitarfélagið er óhjákvæmilegt að gera alvarlegar athugasemdir við afgreiðslu málsins í ráðinu.

Málið er sett fram sem viljayfirlýsing um samstarf sem er ekki rétt heldur snýst yfirlýsingin um að sveitarfélagið ætli að ráðstafa eignum sínum til einkafyrirtækis. Eðlilegra hefði verið að bærinn markaði sér stefnu um útboð þegar um úthlutun takmarkaðra gæða er að ræða í stað þess að semja beint við tiltekin einkafyrirtæki. Það yrði þó aldrei gert nema á grundvelli stefnu um þau svæði sem bærinn hefur yfir að ráða. Engin stefna er til um framtíð Krýsuvíkur sem óumdeilanlega er fágæt perla í eigu Hafnfirðinga. Bæjarbúar hafa enga aðkomu fengið að marka stefnu um svæðið sem einkafyrirtæki á nú að fá frjálsar hendur með að vinna.

Krýsuvík er innan Reykjanesfólkvangs sem komið var á laggirnar fyrir hálfri öld síðan. Þökk sé framsýnum og stórhuga sveitarstjórnarmönnum á sínum tíma varð þessi náttúruperla í bakgarði Hafnfirðinga og höfuðborgarsvæðisins alls tekin frá fyrir þáverandi og komandi kynslóðir. Áform núverandi meirihluta bæjarstjórnar eru í hrópandi ósamræmi við friðlýsingarskilmála fólkvangsins. Það gengur auðvitað ekki.
Þá er bæði óeðlilegt og óábyrgt að bæjarstjórn geri bindandi samkomulag við einkafyrirtæki um svo stór áform á síðustu dögum kjörtímabilsins þegar umboð bæjarstjórnar er að renna út og kannanir benda til þess að meirihlutaflokkarnir njóti ekki lengur stuðnings meirihluta kjósenda. Að hraða slíkri ákvarðanatöku í aðdraganda kosninga verkur óhjákvæmilega upp ýmsar spurningar um hvaða hagsmunir liggja þar að baki. Nær hefði verið að gæta meðalhófs við afgreiðslu málsins, fresta afgreiðslu þess fram yfir kosningar og gefa nýrri bæjarstjórn með skýrt lýðræðislegt umboð tækifæri til að taka réttmæta og málefnalega ákvörðun um hvort og þá hvernig eigi að vinna að framgangi þess í samræmi við vilja kjósenda. Hið minnsta að kanna hug Hafnfirðinga til framtíðar svæðisins áður en svo afdrifarík ákvörðun er tekin.

Einu sinni sem oftar leitar meirihluti bæjarstjórnar til tiltekinna fyrirtækja fremur en að bjóða stórverkefni út á almennum markaði. Við höfum séð það áður, t.d. með samningum um skólamat án útboðs, samningum um byggingu og rekstur leikskóla án útboðs, og samningum um rekstur bæjarhátíðar án útboðs, svo nýleg dæmi séu tekin.
Og eina ferðina enn sýnir bæjarstjórn skeytingarleysi gagnvart Reykjanesfólkvangi og markmiðum með friðlýsingu hans. Dæmi um það er bygging stórvirkjunar langt umfram það sem gert er ráð fyrir í friðlýsingarskilmálum. Einnig iðnaðaruppbygging í fólkvangnum sem engan óraði fyrir við stofnun hans og gerði þaðan af síður ráð fyrir. Og nú ferðaþjónusta sem er á slíkum skala að hún getur á engan veginn verið í samræmi við skilmálana eða þolmörk svæðisins.
Hér með er skorað á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að láta af þeirri einkavinavæðingu sem einkennt hefur störf hennar undanfarin kjörtímabil og gefa nýrri bæjarstjórn tækifæri til að móta sína framtíðarsýn fyrir Krýsuvík óbundinni af viljayfirlýsingunni. Þá er löngu tímabært að Hafnarfjarðarbær virði friðlýsingaskilmála Reykjanesfólkvangs og fólkið sem hann er kenndur við og leyfi náttúrunni að njóta vafans. Fyrir núverandi og komandi kynslóðir Hafnfirðinga.
Davíð Arnar Stefánsson
skipar 3ja sæti lista Vinstrisins





