Nú líður að kosningum og alls konar efni sem streymir um alla miðla.
Vilyrði eru gefin og spurningar koma um hvað við ætlum að gera. Ein spurningin sem kom, var ,,hvað ætlið þið að gera fyrir eldri borgara sem búa heima“. Bærinn styður við félagsstarf eldri borgara, heimaþjónustu og heimsending matar er í boði en svo eru margir sem eru bara góðir heima fyrir og þurfa ekki sérstaka þjónustu. Ég tók mig til að spurði tvo óskylda aðila, sem búa heima hjá sér, hvað væri hægt að gera betur fyrir þau. Bæði voru með svarið á hreinu. Hættið að ryðja snjónum af götum og gangstéttum fyrir nýmokaðar innkeyrslurnar okkar. Ég hafði svo sem áttað mig á þessu í vetur en ég hafði keypt mér snjótönn á fjórhjólið mitt og hreinsað innkeyrslur hjá nokkrum fjölskyldu og vinatengdum. Það er nefnilega þannig að fyrst kemur tæki sem ryður snjó af gangstéttum og stígum og síðan kemur tæki sem ryður af götunum og í báðum tilfellum er rutt fyrir innkeyrslur sem fólkið sjálft eða aðstandendur þeirra hafa mokað. Þegar ekið er yfir þessa ruðninga verður jafnvel tjón á ökutækjum, aurhlífar detta af, pústið laskast og fleira í þeim dúr. Það er ljóst að við getum gert betur í þessu og farið fram á það við verktaka sem sjá um snjómokstur og ruðning að finna leið til þess að þetta gerist ekki. Þetta snýst nefnilega um Hafnarfjörð og íbúana.
Guðmundur Fylkisson,
í 5. Sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði.




