Spurningalið Setbergsskóla tók þátt í undanúrslitum í Spurningakeppni grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu sem haldin var 9. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þar voru mætt þau fjögur lið sem unnu sína riðla í undankeppnunum sem voru Dalskóli, Lágafellsskóli, Laugalækjarskóli og Setbergsskóli.
Lágafellsskóli og Setbergsskóli sigruðu í undanúrslitum og kepptu svo til úrslita sem Setbergsskóli sigraði eftir mjög spennandi keppni fram á síðustu mínútu.
Fékk liðið bæði eignarbikar og farandbikar að launum.
Í liðinu voru þau Hrafnkell Hrafnsson, Reynir Örn Sigrúnarson og Karólína Bríet Arelakis, sem einnig voru í liði Setbersskóla sem sigraði í keppninni „Veistu svarið“ í Hafnarfirði.
Sjá:
Bikarinn áfram í Setbergsskóla – Fjarðarfréttir





