HeimFréttirMenning og mannlífBikarinn áfram í Setbergsskóla

Bikarinn áfram í Setbergsskóla

Úrslit í spurningakeppni grunnskólanna í Hafnarfirði, Veistu svarið?, var haldin í Bæjarbíói í gær þar sem lið Víðistaðaskóla og Setbergsskóla kepptu.

Nýtt fólk kom að keppninni en spurningahöfundur og stigavörður var Einar Baldvin Brimar sem á sínum tíma keppti fyrir Setbergsskóla og spyrill var Tómas Geir Howser Harðarson sem á sínum tíma keppti fyrir Víðistaðaskóla.

Einar Baldvin Brimar og Tómas Geir Howser Harðarson

Keppnin var í nokkrum hlutum, fyrst komu hraðaspurningar, síðan kom myndagáta, bjölluspurningar, villuleit og keppninni lauk með þríþraut.

Í liði Víðistaðaskóla voru Lilja Bergrós Kristjánsdóttir. Orri Kristmundsson og Steinar Logi Hallgrímsson, en þjálfari þeirra var Birkir Már Viðarsson.

Lið Víðistaðaskóla; Orri Kristmundsson, Steinar Logi Hallgrímsson og Lilja Bergrós Kristjánsdóttir

Í liði Setbergsskóla voru Hrafnkell Hrafnsson, Karólína Bríet Arelakis og Reynir Örn Sigrúnarson, en þjálfari þeirra var Margrét Guðbrandsdóttir.

Lið Setbergsskóla; Hrafnkell Hrafnsson, Reynir Örn Sigrúnarson og Karólína Bríet Arelakis

Lið Setbergsskóla náði tveggja stiga forystu eftir hraðaspurningarnar. 12-10 en lið Víðistaðaskóla jafnaði metin í 16-16 en Setbergsskóli komst svo einu stigi yfir í vísbendingaspurningu sem dugði þeim til sigurs.

Ekki náðist að ráða þessa myndagátu en lausnin er Þjóð(fánar)leik(völlur)hús. Alla vega augljóst eftir á.

Stigin voru mun færri en undanfarin ár en hvorugu liðinu tókst að svara nokkrum spurningum.

Ekki náðist að svara því að þau öll eiga það sameiginlegt að vera fædd á Hawaii

Setbergsskóli hampaði bikarnum annað árið í röð og fékk liðið að launum pítsaveislu og bókina Flensborg – stúdentar í 100 ár auk bikarsins sem Hafnfirðingurinn Gunnar Eyjólfsson gerði.

 Karólína Bríet Arelakis, Hrafnkell Hrafnsson og Reynir Örn Sigrúnarson með bikarinn eftirsótta

Víðistaðaskóli svaraði því rétt í vísbendingaspurningu að millinafn Laufeyjar væri Bing – Laufey Lín Bing Jónsdóttir

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2