Miðvikudagur, mars 18, 2026
HeimFréttir19 Hafnfirðingar í næst stærstu skíðagöngukeppni heims

19 Hafnfirðingar í næst stærstu skíðagöngukeppni heims

Sviss Engadin gönguskíðakeppnin var haldin 1. – 8. mars sl.

Þetta er næst stærsta gönguskíðakeppnin á eftir Vasa göngunni en 11.734 hófu keppni í bæði heilu maraþoni og hálfu maraþoni. Keppnin hefur verið haldin árlega síðan 1969.

Nítján félagar í Skíða- og skautafélagi Hafnarfjarðar kepptu í heilu maraþoni 8. mars en alls hófu 9.763 keppni en 9.717 luku keppni, þar af allir Hafnfirðingarnir.

Sveinbjörn Sigurðsson lengst til hægri ásamt þeim Ragnari Haraldssyni og Örnu Friðriksdóttur en þau röðuðu sér í 2-4 sæti Hafnfirðinganna. Aðsend mynd

„Það voru frábærar aðstæður á keppnisdeginum og mikil stemning í brautinni. Hafnfirðingar stóðu sig með sóma og kláruðu allir þessa 44 km langa göngu, sem var krefjandi á köflum,“ segir Sveinbjörn Sigurðsson skíðaþjálfari í samtali við Fjarðarfréttir.

Sigurður Ísólfsson kom fyrstur Íslendinganna í mark á 3,17.57 klst.
Fyrstur í mark í heila maraþoninu var Norðmaðurinn Einar Hedegart sem fór brautina á aðeins 1,30.40 klst. aðeins 0,1 sekúndu á undan næsta manni sem var heimamaður.

Haldið á keppnisstað. Aðsend mynd

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2