Miðvikudagur, febrúar 18, 2026
HeimÁ döfinniÚtgáfutónleikar Björns Thoroddsen á föstudag

Útgáfutónleikar Björns Thoroddsen á föstudag

Björn Thoroddsen hefur í mög ár verið með 20 mínútna innskot á Facebook á föstudögum sem hann kallar fridaynight@hringbraut.

Hann er nú að gefa út plötu sem heitir Fridaynight@hringbraut og verður með útgáfutónleika í næsta nágreni, Ægi brugghúsi í gamla Íshúsinu núna á föstudag.

„Fridaynight varð til á Hringbrautinni, ég fæddist á Hringbrautinni, platan er tekin upp á Hringbrautinni og útgáfutónleikarnir eru, liggur við í næsta húsi, Íshúsinu við Strandgötu en þar vorum við strákarnir úr Suðurbænum að æfa hljómsveit 1974 – 75. Þess vegna er staðsetningin á þessari uppákomu engin tilviljun,“ segir Björn í tilkynningu til Fjarðarfrétta.

Húsið verður opnað klukkan sjö, tónleikarnir hefjast kl. 20 og með Bjössa leika Jón Rafnsson á bassa og Fúsi Óttars á trommur.

Miðasala er á Tix.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2