Farið verður yfir heimildir um afnot af eignum í eigu bæjarins á næsta fundi fræðsluráðs. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurnum Fjarðarfrétta til bæjarstjóra 9. febrúar sl.
Þetta gerist í framhaldi af undirskriftalista sem hrundið var af stað í kjölfar þess að samkomulagi við Marcell Hevesi um afnot af saunaklefum fyrir saunaþjónustu var sagt upp frá og með febrúarlokum.
Eftirfarandi spurningar voru sendar bæjarstjóra:
-
- Hver var raunveruleg ástæða þess að samningnum við Marcell Hevesi var sagt upp?
- Má búast við að öðrum samningum um afnot af húsnæði Suðurbæjarlaugar og öðrum laugum verði sagt upp?
- Hvaða reglur eru hjá Hafnarfjarðarbæ um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins og í hennar umsjá?
- Verður ákvörðunin um uppsögn endurskoðuð?
Í svari sem samskiptastjóri Hafnarfjarðar sendi blaðinu í dag segir að enginn samningur hafi verið gerður um afnot einkaaðila að gufubaðsaðstöðunni í Suðurbæjarlaug og ekki hefur verið farið fram á gjald fyrir aðstöðuna.
Segir í svarinu að fyrir tæplega tveimur árum hafi verið ákveðið að veita aðila heimild til að nota aðstöðuna í Suðurbæjarlaug fyrir rekstur á gusuþjónustu á skilgreindum tímum og loka þá aðstöðunni fyrir öðrum sundlaugargestum á meðan. „Þetta var gert til að bjóða uppá nýjan valkost í heilsueflingu,“ segir í svarinu.
„Mikilvægt er að yfirfara heimildir um afnot af eignum í eigu bæjarins og því samningsformi sem er á bak við þær“.
Segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun varðandi önnur afnot af aðstöðu Suðurbæjarlaugar eða öðrum sundlaugum að svo stöddu en áhersla verði lögð á að tryggja að afnot af eignum bæjarins séu í öllum tilvikum skýr, samningsbundin og í samræmi við heimildir sveitarfélagsins. Málið verður tekið fyrir í fræðsluráði á næsta fundi.
Starfsemin heldur áfram á meðan málið er skoðað heildstætt
Þá segir í svarinu að veitt hafir verið heimild fyrir starfseminni sem hér um ræðir á meðan málið er skoðað heildstætt.
Segja vinsælli saunaþjónustu lokað vegna kvartana bæjarlögmanns




