„Við erum rétt að opna Hreiðrið við Lækinn. Mér líst frábærlega vel á þetta nýja ungmennahús hafnfirskra ungmenna,“ segir Svala Eyjólfsdóttir, nýr verkefnastjóri þess.
„Það er góður andi í húsinu.“ Hún segir spennandi að vera einmitt í Nýsköpunarsetrinu.
„Það eru endalausir möguleikar að gera það sem hverju og einu dettur í hug. Við erum komin með gott teymi hér í Hreiðrinu og erum peppuð í veturinn,“ segir Svala. Hreiðrið er hugsað fyrir fólk á aldrinum 16-25 ára.
Eiga sér stað í samfélaginu
Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarsetursins við Lækinn, fagnar því að fá unga fólkið í þessa uppsprettu nýsköpunar og lista.
„Þau eru öll velkomin á þennan huggulegan stað og geta kynnast öðrum á svipuðum aldri. Með því að vera með Hreiðrið í Nýsköpunarsetrinu geta þau tilraunast í nýjum áhugamálum. Við höfum tilraunasmiðju opna fyrir ungmennin þar sem þau geta eflt sig í listum. Þau komast í tæknismiðjuna og geta spreytt sig í stafrænni færni,“ segir hún.
„Það er nauðsynlegt að koma á einn stað, eiga rót í símafélaginu,“ segir hún.
Skapa eigið andrúmsloft
Veturinn er tilhlökkunarefni og segja þær frá því að nýtt ungmennaráð hafnfirskra ungmenna verði einmitt með aðstöðu í húsinu. Þá sé Músík og mótor búið að koma tónlistarhluta sínum fyrir á þriðju hæðinni.
„Við erum einnig að búa til rými þar sem hver og einn getur komið inn og tekið upp tónlist og hlaðvarp. Stefnan okkar er að vera heimili skapandi hugsunar, leyfa áhugamálum að blómstra og tengjast fólki. Virkja jákvæðan sköpunarkraft,“ segir Bryndís. „Hér má líka bara koma, hangsa og slappa af. Þetta er rými fyrir ungmenni til að koma og skapa það andrúmsloft sem þau vilja.“
En hvað bíður ungmennanna í Hreiðrinu við Lækinn?
- Þægilegur sófi og spilaaðstaða
- Billard-borð, brátt píluborð
- Hægt að koma af stað klúbbastarfsemi,
- Spunaspilarar á fimmtudögum.