HeimFréttirGuðrún Hildur og Jóna Dóra fengu fálkaorðuna

Guðrún Hildur og Jóna Dóra fengu fálkaorðuna

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2024, sæmdi forseti Íslands
16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Búningar úr safni Annríkis sem voru til sýnis í Hafnarborg á 17. júní
Guðrún Hildur Rosinkjær í glæsilegum íslenskum þjóðbúningi.

Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og sagnfræðingur, fékk riddarakross fyrir rannsóknir, miðlun og varðveislu menningar tengda íslenskum þjóðbúningum.

Guðrún Hildur rekur fyrirtækið Annríki, búningar og skart, ásam eiginmanni sínum og hefur haldið fjölmörg námskeið í gerð íslenskra þjóðbúninga.

Daginn sem hún fékk fálkorðuna stóð yfir sýning á hluta að safnkosti hennar í Apótekinu í Hafnarborg en margir undruðust fráveru Hildar þegar fólk í þjóðbúningum safnaðist saman fyrir utan Hafnarborg til myndatöku.

Það skýrðist svo síðar að Hildur þurfti að bregða sér til Bessastaða í miðju annríki sínu.

Jóna Dóra Karlsdóttir ásamt forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni,

Þá fékk Jóna Dóra Karlsdóttir, stofnandi og fyrrverandi formaður Nýrrar dögunar, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf til stuðnings syrgjendum og fyrir að stuðla að opinni umræðu um sorg og sorgarviðbrögð. Jóna Dóra er fv. bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.

Orðuhafar með forseta Íslands.

Þau fengu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:

  • Dísella Lárusdóttir óperusöngkona, riddarakross fyrir framlag til sönglistar.
  • Eiríkur Jónsson yfirlæknir, riddarakross fyrir framlag til þvagfæraskurðlækninga og heilbrigðisþjónustu.
  • Fannar Jónasson bæjarstjóri, riddarakross fyrir þjónustu í þágu samfélagsins á tímum hamfara.
  • Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og sagnfræðingur, riddarakross fyrir rannsóknir, miðlun og varðveislu menningar tengda íslenskum þjóðbúningum.
  • Jóna Dóra Karlsdóttir, stofnandi og fyrrverandi formaður Nýrrar dögunar, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf til stuðnings syrgjendum og fyrir að stuðla að opinni umræðu um sorg og sorgarviðbrögð.
  • Margrét Vilborg Bjarnadóttir, verkfræðingur og stofnandi PayAnalytics, riddarakross fyrir framlag til nýsköpunar á sviði hugbúnaðar í þágu jafnlaunastefnu.
  • Margrét Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi skátahöfðingi, riddarakross fyrir störf í þágu skátahreyfingarinnar.
  • Ómar Einarsson, fyrrverandi sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg, riddarakross fyrir framlag og frumkvæði í íþrótta-, tómstunda- og velferðarmálum.
  • Rósa Björk Barkardóttir sameindalíffræðingur, riddarakross fyrir framlag til vísinda og krabbameinsrannsókna.
  • Sigrún Steinarsdóttir Ellertsen, stofnandi og umsjónarmaður Matargjafa, riddarakross fyrir framlag til mannúðarmála í heimabyggð.
  • Stefán Baldvin Sigurðsson, fyrrverandi háskólarektor, riddarakross fyrir störf í þágu menntunar, vísinda og félagsmála.
  • Svanur Ingvarsson, kennari og húsasmíðameistari, riddarakross fyrir framlag í þágu íþróttastarfs fatlaðra.
  • Þorvaldur Jónsson bóndi, riddarakross fyrir félags- og menningarstörf í héraði.
  • Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf og nýsköpun á vettvangi sjávarútvegs.
  • Þórey S. Kemp Guðmundsdóttir íþróttakennari, riddarakross fyrir framlag til íþróttaiðkunar kvenna og heilsueflingar aldraðra.
  • Þórhallur Sigurðsson, leikari og leikstjóri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og brautryðjendastarf í barnaleikhúsi.

Tveir orðuhafar voru staddir erlendis, þær Dísella Lárusdóttir og Margrét Vilborg Bjarnadóttir, og verða þær sæmdar orðunni við fyrsta tækifæri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2