Hafnfirðingar fagna fyrsta degi sumars með sumarhátíð.
Fjölskyldan öll ætti að geta fundið sér skemmtun við hæfi á sueginum fyrsta í Hafnarfirði í skrúðgöngu með fánaborg skátanna, á tónleikum, opnum húsum og fjölbreyttri fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í umsjón skátafélagsins Hraunbúa.
Dagskrá Sumardagsins fyrsta í Hafnarfirði
- Kl. 12. Víðavangshlaup Hafnarfjarðar í miðbæ Hafnarfjarðar. Upphitun hefst á Thorsplani kl. 12. Hlaupið verður eftir Strandgötu og skipt í aldursflokka að lokinni upphitun. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið og skráning fer fram með því að mæta á staðinn. Sigurvegarar í flokkum fá bikara og allir keppendur verðlaunapeninga sem eru gefnir af Hafnarfjarðarbæ. Að hlaupi loknu mun frjálsíþróttadeild FH kynna frjálsar íþróttir á Thorsplani þar sem hægt verður að prófa langstökk og kúluvarp.
- Kl. 13-16. Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt, Strandgötu 88. Byrjendum og vönum siglingamönnum er boðið að sigla kayak (9 ára og eldri) eða árabátum og þeir sem hafa reynslu geta siglt kænum ef veður leyfir. Í allt sumar verður opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt á fimmtudögum kl. 17 til 22 og laugardögum frá kl. 10 til 13. Allir velkomnir.
- Kl. 13:15. Skrúðganga frá Thorsplani að Víðistaðatúni. Gengið verður frá Thorsplani út Strandgötu, gegnum Bæjartorg, inn Vesturgötu gegnum Merkurtorg, Vesturtorg og Flókatorg, Flókagötu og beygt inn Hraunbrún og upp Garðaveg og endað á Víðistaðatúni undir lúðrablæstri Lúðrasveitar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
- Kl. 13:30-16. Fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í umsjón skátafélagsins Hraunbúa. Skemmtileg og fjölbreytt skátadagskrá fyrir alla fjölskylduna á Víðistaðatúni og skátamiðstöðinni Hraunbyrgi. Kassaklifur, klifurveggur, hægt að prófa að grilla sykurpúða og hike brauð við eldstæði, hoppukastalar, bátar og risastórt hengirúm. Kaffisala í Hraunbyrgi og söluhús á Víðistaðatúni þar sem til sölu verður ullarsykur, krap og popp.
- Kl. 13. Tónafljóð á Bókasafni Hafnarfjarðar. Sú hefð hefur skapast að syngja inn sumarið á Bókasafni Hafnarfjarðar og í ár eru það Tónafljóð sem mæta með íslenskar dægurlagaperlur. Það verður kaffi á staðnum, meðlæti og vonandi sól og sumarylur og klárlega gleði og vorvindar á Bókasafni Hafnarfjarðar með þessa frábæru söngsveit á staðnum!
- Kl. 14. BMX brós á tennisvellinum á Víðistaðatúni. BMX brós slá botninn í dagskrána á Víðistaðatúni með áhættusömum atriðum og hjólasýningu fullri af gleði og húmor.




