Leiðrétt: Sjá nýja frétt hér.
Nýtt stálgrindarhús við Dofrahellu í nýjasta iðnaðarsvæðinu við Krýsuvíkurveg sprakk í óveðrinu sem nú gengur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni rétt í þessu.
Lokað hefur verið fyrir umferð um Helluhverfi.
Þeir sem eru staðsettir í hverfinu eða næsta nágrenni eru beðnir um að halda sig innandyra, en brak úr húsinu hefur fokið til. Búist er við að veðrið á þessum stað gangi niður næsta klukkutímann.



