Þriðjudagur, október 14, 2025
HeimFréttirLosað úr götusópi við enda götu

Losað úr götusópi við enda götu

Íbúi sendi Fjarðarfréttum meðfylgjandi myndir sem sýnir bíl frá Íslenska Gámafélaginu losa úr tanki bílsins við enda botnlangagötu á Álfaskeði, rétt við göngustíg.

Þó ummerki séu ekki mikil á staðnum má þó sjá að þarna hefur verið dælt skítugu vatni frá götusópun en vatnið getur innihaldið hvers kyns óþverra af götunum.

Halldór Ásgrímur Ingólfsson, tæknifræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðarkaupstaðar segir þessir bílar megi aðeins losa á ákveðnum stöðum og að málið verði skoðað.

Verktakar eru nú við sópun á götum bæjarins fyrir veturinn til m.a. að hreinsa upp lauf og annað sem stíflað gæti niðurföll.

Niðurföll í götum bæjarins eru hins vegar yfirfarin og hreinsuð á þriggja ára fresti svo ef bæjarbúar sjá stífluð niðurföll er rétt að tilkynna það hér.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2