fbpx
Miðvikudagur, maí 1, 2024
target="_blank"
HeimUmræðanHafnarfjörður á að vera í fremstu röð

Hafnarfjörður á að vera í fremstu röð

Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Það hefur verið sorglegt að fylgjast með þeim persónulegu átökum og þeim glundroða sem einkennt hafa störf meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar undir forystu Sjálfstæðisflokksins á síðustu vikum og mánuðum. Þetta er ekki sú mynd sem bæjarbúar vilja að birtist af bænum þeirra og þeir eiga betra skilið.

Stóraukum framboð á húsnæði á viðráðanlegum kjörum

Hafnarfjörður rekur lestina á meðal bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi fjölda íbúða í byggingu. Þessu ætlar Samfylkingin að breyta. Við ætlum að tryggja nægt framboð af lóðum og bjóða upp á fjölbreytta valkosti á húsnæðismarkaði. Einnig viljum við byggja upp öruggan leigumarkað og taka höndum saman við félög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni um uppbyggingu á stúdentaíbúðum, íbúðum fyrir aldraða og tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga.

Stórsókn í leikskólamálum

Í kjölfar eins lengsta og mesta hagvaxtarskeiðs landsins er staðan sú að þörf er á stórátaki í leikskólamálum í Hafnarfirði. Leikskólum og ungbarnaleikskólum hefur verið lokað án þess að boðið hafi verið upp á ný úrræði í staðinn. Við í Samfylkingunni viljum byggja fleiri leikskóla, ungbarnadeildir og ungbarnaleikskóla samhliða því að fara í átak til að fjölga leikskólakennurum. Við teljum að mikilvægasta verkefnið sé að hefja nú þegar byggingu leikskóla í Suðurbæ.

Virkjum lýðræðið á ný

Íbúalýðræði hefur ekki átt upp á pallborðið hjá núverandi meirihluta. Átök og pólitískar barbabrellur Sjálfstæðisflokksins í tengslum við forgangsröðun framkvæmda sýna fram á þetta. Við í Samfylkingunni leggjum áherslu á lýðræðislega þátttöku bæjarbúa og aukið aðgengi fólks að ákvarðanatöku þannig að ákvarðanir um forgangsröðun framkvæmda séu teknar í samráði og sátt við bæði íbúa og hagsmunaaðila.

Festa og ábyrgð einkenni störf bæjarstjórnar á ný

Karp bæjarstjórnar um kjörgengi og brottvikningar varabæjarfulltrúa úr nefndum og ráðum kemur í veg fyrir að hún geti einbeitt sér að málum sem skipta almenning raunverulegu máli. Festa og ábyrgð verða að einkenna störf bæjarstjórnar á nýjan leik til að svo megi verða. Forsenda þess að það gangi eftir, og að Hafnarfjörður komist aftur í fremstu röð, er að Samfylkingin fái góða kosningu í bæjarstjórnarkosningunum 26. maí nk.

Árni Rúnar Þorvaldsson
skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2