Sveitarstjórnarmál snúast um daglegt líf fólks. Fyrir okkur í Framsókn í Hafnarfirði er það kjarninn sem við höfum unnið eftir. Við erum fyrst og fremst að vinna fyrir fólkið í bænum og viljum að bæjarfélagið virki fyrir fólkið sem hér býr og starfar.
Okkar pólitík byggir á einfaldri og skýrri sýn en það er að setja fólk og fjölskyldur í fyrsta sæti. Við trúum á raunhæfar lausnir. Við trúum á sterka nærþjónustu, opið samtal og gott aðgengi að stjórnsýslunni. Þegar fólk finnur að á það er hlustað, að það fái svör og að rödd þess hafi raunverulegt vægi, þá verður samfélagið sterkara.
Þetta er líka það sem sveitarstjórnarmál snúast um í reynd. Hvort barn komist á leikskóla, hvort skólinn sé góður, hvort gatan sé mokuð, hvort ruslið sé tekið og hvort umhverfið sé snyrtilegt og öruggt. Þetta eru ekki smáatriði. Þetta er nærþjónustan sem mótar lífsgæði fólks á hverjum degi. Bæjarfélagið á að vera þjónustustofnun fyrir íbúana, ekki stofnun sem fólk þarf að berjast við. Við viljum einfaldlega að hlutirnir virki.
Ábyrg hlustun og bær sem heldur utan um sitt fólk
Við viljum byggja Hafnarfjörð þar sem ungt fólk getur komist úr foreldrahúsum og þar sem eldra fólk getur minnkað við sig þegar aðstæður breytast. Við viljum samfélag þar sem fjölskyldur finna fyrir stuðningi og öryggi.
Við vitum líka að bæjarfélagið getur ekki leyst allt eitt og sér. Þess vegna þarf stundum samvinnu við ríkið, hvort sem það snýr að málefnum fatlaðs fólks, samgöngum eða öðrum stórum hagsmunamálum fyrir Hafnarfjörð. En sama hversu stór verkefnin eru þá má aldrei missa sjónar á því fyrir hvern við erum að vinna, fólkið í bænum.
Þess vegna skiptir máli að forysta bæjarins sé sýnileg og aðgengileg. Bæjarstjórinn á að vera í raunverulegu samtali við fólkið, hlusta á raddir íbúanna og vera til staðar. Það skapar traust þegar stutt er í samtalið, þegar hægt er að ná inn sjónarmiðum og þegar fólk upplifir að bæjarstjórinn sé ekki lokaður inni á skrifstofunni heldur úti meðal fólks. Sú nálgun skiptir máli vegna þess að góð stjórnsýsla verður ekki til án tengsla, hlustunar og ábyrgðar. Þannig tel ég mig hafa unnið sem bæjarstjóri.
Fyrir okkur í Framsókn snýst þetta um fólkið. Um fjölskyldurnar, börnin, eldra fólkið og alla íbúana. Um að byggja bæ þar sem fólk finnur að það skiptir máli. Þar sem hlustað er á fólk. Það er sú mannlega nálgun sem við stöndum fyrir og það er sá Hafnarfjörður sem við viljum byggja áfram. Þetta snýst fyrst og síðast um Hafnarfjörð.
Valdimar Víðisson,
oddviti Framsóknar og bæjarstjóri.





