Það er komið að nemendum og starfsfólki Öldutúnsskóla
Nú þegar líður að sveitarstjórnarkosningum þá fara frambjóðendur að sýna á spilinn og upplýsa um áherslur sínar til næstu fjögurra ár.
Hér er ein spræk hugmynd. Hvað með að setja lögbundið verkefni eins og málefni grunnskóla í forgangi?
Í skammarlega mörg ár hafa foreldrar, nemendur og starfsmenn Öldutúnsskóla verið að kalla eftir heildstæðri áætlun um uppbyggingu og viðhald á skólanum. Öldutúnsskóli er fjölmennasti skóli sveitarfélagsins og einn sá elsti, sem hefur mikið að segja til um ástand skólans og möguleika til breytinga. Þar ber helst að nefna kröfuna um íþróttahús og viðundandi frístundaheimili.

Það er óumdeilanlegt að Öldutúnsskóli hefur setið á hakanum í Hafnarfirði. Ljóst er að skólinn þarf ekki skammtíma innspýtingu frá bæjaryfirvöldum, heldur þarf hann að komast í forgang og kastljós bæjaryfirvalda strax. Gera þarf heildstæða framkvæmdaáætlun um viðhald húsnæðis og lóðar, og áætlun um frekari uppbyggingu skólans og skólaumhverfisins.
Þau mál sem nauðsynlegt er að vinna að auk þeirra sem nefnd hafa verið;
- Áformum um stækkun skólans sem eru löngu tímabær.
- Endurbótum og hönnun á leiksvæði skólans.
- Nauðsynlegt er að fara í breytingar á leiksvæðinu /skólalóðinni. Ásigkomulag þess er afar slæmt og nauðsynlegt að endurhanna það m.t.t. þess að hámarka nýtingu leiksvæðisins ekki síst vegna þess að Öldutúnsskóli stendur í grónu íbúðahverfi og stækkunarmöguleikar leiksvæðis nemenda eru takmarkaðir.
- Lækkun umferðarhraða er nauðsyn.
- Lækka þarf hámarkshraða umhverfis skólann úr 30 km hraða í 15 km hámarkshraða til að auka öryggi skólabarnanna.

Það á ekki að skipta hvar börnin búa í sveitarfélaginu um hversu vel er búið að þeim. Það er komið að nemendum og starfsfólki Öldutúnsskóla.
Ætlar þú frambjóðandi góður að boða breytingar í húsnæðis- og skólalóðarmálum Öldutúnsskóla fyrir komandi kynslóðir? Engin sómi væri að öðru eða ætlar þú að velta vandamálunum frá einni kynslóð yfir á þá næstu?
f.h. Foreldrafélags Öldutúnsskóla
Svava Björnsdóttir, formaður stjórnar Foreldrafélags Öldutúnsskóla





