Þriðjudagur, maí 13, 2025
HeimFréttirBergrún Ósk úr FH er íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra

Bergrún Ósk úr FH er íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra

Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir úr FH var í dag kjörin íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra, þriðja árið í röð.

Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi var kjörinn íþróttakarl ársins hjá ÍF.

Bergrún Ósk setti Íslandsmet í langstökki í sumar þegar hún stökk 4,30 metra og bætti þar með Íslandsmet  Matthildar Ylfu Þorsteinsdóttur í flokknum T37. Bergrún er 20 ára og keppir í flokki TF37, flokki hreyfihamlaðra.

Árangri ársins 2020 náði Bergrún sem félagsmaður hjá ÍR en nýverið skipti hún yfir til FH og munu þau félagsskipti taka fullt gildi um áramót.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2