Laugardagur, febrúar 21, 2026
HeimFréttirVilja veita stöðuleyfi fyrir Herjólfsgufuna í eitt ár í viðbót

Vilja veita stöðuleyfi fyrir Herjólfsgufuna í eitt ár í viðbót

Á afgreiðslufundi byggingafulltrúa þann 20. janúar 2025 var samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs gengt Herjólfsgötu 38, þrátt fyrir mótmæli íbúa þar. Áður var gufan staðsett gengt Herjólfsgötu 32 en var færð til vegna ábendinga íbúa þess húsnæðis.

Vilja að gufan verið á bílaplaninu að Hleinum, Langeyrarmölum eða á Óseyararbraut.

Nú er liðið eitt ár, stöðuleyfið er fallið úr gildi en með bréfi 22. janúar sl. sækir Herjólfsgufan um áframhaldandi samstarf við Hafnarfjarðarbæ um staðsetningu og leggur til að hún verði færð til á bílaplanið að Hleinum, Langeyrarmölum eða á Óseyrarbraut.

Ekkert deiliskipulag er til fyrir húsnæði Herjólfsgufunnar og ekkert skilgreint í aðalskipulagi.

Fyrsta gufuhúsið var framan við Herjólfsgötu 32

Í umsögn skipulagssviðs segir að þar sem ekki sé til deiliskipulag fyrir þessa starfsemi hefur gufan verið rekin á stöðuleyfi. Hins vegar megi velta því fyrir sér hvort að mannvirki eins og þetta, þurfi ekki frekari innviði eins og tengingar við veitukerfi og salernisaðstöðu. Það eitt, kallar á gerð deiliskipulags eða breytingu á gildandi skipulagsáætlunum.

„Í deiliskipulagi eru settir frekari skilmálar um m.a. landnýtingu, hönnun mannvirkja, vernd náttúru- og menningarminja o.fl. Skilmálar deiliskipulagsins eru grundvöllur fyrir veitingu byggingarleyfa og tryggja réttarstöðu hagsmunaaðila. Með þessu móti er verið að tryggja framtíð Herjólfsgufunnar ásamt viðfangsefnum hennar og markmið nánar skilgreind ásamt því að gerð verður lóð og byggingarreitur fyrir mannvirkið.“

Vakin er athygli í umsögninni á því að bílaplanið við Langeyrarmalirnar og fjaran við Brúsastaði sé innan fólkvangs sem er friðlýstur frá árinu 2009 og skv. auglýsingu um stofnun fólkvangsins er m.a. markmið að vernda fjöru og útivistarsvæði í fögru hraunumhverfi. Það geti því verið flókið viðfangsefni að hrófla við landslagi í friðuðum fólkvangi þannig að það þyrfti að skoða nánari staðsetningu í stærra samhengi.

Bent er á að gerð deiliskipulags getur tekið langan tíma og þurfi aðkomu ýmissa hagsmunahópa.

Íbúar gegnt saunahúsinu mótmæltu staðsetningunni þar sem það byrgði útsýni á neðstu hæðum. Ekki var tekið tillit til þess þar sem aðeins væri verið að veita stöðuleyfi til eins árs.

Lagt er til að veitt verði stöðuleyfi til eins árs á meðan umræður um framtíð og fyrirkomulag gufunnar/saunahússins fari fram.

Skipulags- og byggingarráð tók á fundi sínum 19. febrúar, undir umsögn verkefnastjóra á umhverfis- og skipulagssviði og vísaði því til fyrirspyrjanda að sækja um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa að nýju vegna áframhaldandi starfsemi Herjólfsgufunnar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2