Fulltrúar Actavis á Íslandi og Knattspyrnudeildar FH skrifuðu í dag undir nýjan tveggja ára samstarfssamning sem gildir til loka árs 2019.
Actavis hefur stutt við uppbyggingu félagsins síðan 2001 þegar forveri Actavis, Delta, gerði fyrst samning við knattspyrnudeildina.
„Actavis á Íslandi er mikið í mun um að styðja við nærumhverfi sitt eins og það best getur. Hlutverk Actavis er að efla heilsu og lífsgæði fólks og stuðningur við forvarnir og grasrótarstarf íþrótta- og æskulýðshreyfinga, eins og þessi samningur við Knattspyrnudeild FH endurspeglar, er mikilvægur þáttur í uppfylla það hlutverk,“ segir í tilkynningu frá Actavis.
Þá er Actavis stolt af því að styðja enn frekar við vöxt og uppgang kvennaknattspyrnu FH á samningstímanum.
Ekki er gefið upp hversu hár styrkurinn er.