Þriðjudagur, febrúar 17, 2026
HeimFréttirÚtskriftarnemendur sýna metnaðarfullan söngleik um helgina

Útskriftarnemendur sýna metnaðarfullan söngleik um helgina

Nemendur 10. bekkjar Víðistaðaskóla frumsýna á föstudag söngleikinn Mamma Mía.

Nærri fimmtíu manna leikhópur tekur þátt í sýningunni og aðrir fjörutíu sinna stuðningshlutverkum.

Öllu er tjaldað til. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa öll lagt sitt á mörgum við að sauma búninga og smíða leikmynd og hafa æfingar staðið yfir síðan í haust.

Sýningar verða 13.-15. febrúar og eru fimm talsins. Fer hvar að verða síðastur að tryggja sér miða. Verð almennt 3.200 krónur en 1.700 fyrir 7. bekk og yngri.

Nemendurnir fjármagna útskriftarferð sína í Þórsmörk í vor með sýningunni. Söngleikurinn er líka hluti af list- og verkgreinanámi þeirra.

Söngleikurinn

Söngleikurinn Mamma Mía er byggður á tónlist Abba og fjallar um unga konu sem er að gifta sig á grískri eyju og vill komast að því hver faðir hennar er. Hún býður þremur mögulegum feðrum í brúðkaupið án þess að móðir hennar viti af því. Sagan er létt, fyndin og full af þekktum og grípandi lögum.

  • Höfundar: Catherine Johnson og ABBA
  • Íslensk þýðing: Þórarinn Eldjárn
  • Leikstjórn: Úlfhildur Harne Örnólfsdóttir
  • Tónlistarstjórn: Jóhanna Ómarsdóttir
  • Danshöfundur: Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir
  • Búningahönnun: Kristín Högna Garðarsdóttir
  • Sviðsmynd, búningar, förðun, ljós og hljóð er allt í höndum krakkanna og foreldra þeirra.

Verkefnið er árlegt samstarfsverkefni skólans, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins og foreldra og koma allir nemendur í 10. bekk á einhvern hátt að verkefninu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2