fbpx
Fimmtudagur, apríl 25, 2024
HeimFréttirUmsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna framlengdur til 8. maí

Umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna framlengdur til 8. maí

Umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna hefur verið framlengdur til 8. maí 2020 á meðan beðið er eftir afgreiðslu á fjáraukalögum á Alþingi.

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að veitt verði viðbótar fjárframlag „300 milljón kr. til Nýsköpunarsjóðs námsmanna vegna þriggja mánaða launa til ungra frumkvöðla þar sem áhersla verður lögð á þjálfun í frumkvöðlamennsku og nýsköpun. Markmiðið er að sporna gegn atvinnuleysi og efla nýsköpun meðal ungs fólks.“ Ekki er ljóst hvort nýta megi allt fjármagnið í hefðbundna úthlutun.

Áhugasamir eru hvattir að skoða síðu sjóðsins sem hefur verið uppfærð. Þar er meðal annars að finna reglur sjóðsins, matsblað, algengar spurningar og svör ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2