fbpx
Fimmtudagur, apríl 18, 2024
target="_blank"
HeimFréttirTilmæli sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra um íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu

Tilmæli sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra um íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu

Ítrekuð eru einnig tilmæli til almennings um sóttvarnir

Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum frá deginum í dag til 19. október.

Jafnframt eru þau beðin um að fresta keppnisferðum út á land.

Búast við að fjöldi smita verði áfram hár næstu daga

Þá ítreka sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tilmæli sín vegna aukins fjölda smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum.

Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga.

Eru allir á höfuðborgarsvæðinu hvattir til að vera eins mikið heimavið og kostur er.

  • Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
  • Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
  • Takmörkun fjölda í búðum – einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
  • Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim.
  • Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
  • Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
  • Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.
  • Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2