fbpx
Laugardagur, nóvember 2, 2024
target="_blank"
HeimFréttirÞórður Bjarni nýr aðalræðis­maður á Grænlandi

Þórður Bjarni nýr aðalræðis­maður á Grænlandi

Hafnfirðingurinn Þórður Bjarni Guðjónsson, sendi­fulltrúi fluttist þann 1. ágúst sl., frá utanríkisráðuneytinu til starfa sem aðalræðismaður Íslands í Nuuk.

Hann tekur við af Geir Oddssyni, aðalræðismanni sem fluttist til starfa í ráðuneytið.

Þórður Bjarni hefur m.a. verið aðalræðismaður í Færeyjum og í Kanada en hefur starfað í utan­ríkis­ráðuneytinu síðan 2019. Er hann með aðsetur í Nuuk.

Þórður Bjarni heimsótti nýlega NAPA, stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar í Grænlandi. Í frétt á vef stofnunarinnar segir að þar á bæ hlakki fólk til áframhaldandi góðs samstarfs við ræðismannsskrifstofu Íslands og til að halda Vestnorræna daginn þann 23. september þar sem samstarf á milli vestnorrænu landanna verður fagnað.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2