fbpx
Fimmtudagur, apríl 25, 2024
HeimFréttirÞjófar á ferð

Þjófar á ferð

Fólk hvatt til að vera á varðbergi

Töluvert hefur verið um þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið skv. upplýsingum lögreglunnar og full ástæða er til að minna fólk á að vera á varðbergi.

Hefur m.a. reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum verið stolið, auk þess sem nokkuð hefur verið um innbrot í bæði bíla og á byggingarsvæði.

Fólk er því hvatt til að geyma hjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja er minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa.

Viðbúið er að hinir illa fengnu hlutir séu boðnir til kaups og því nauðsynlegt að hafa varann á.

Lögreglan ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir, taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt, og að það skrifi líka hjá sér bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í umhverfi þess.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2