Samkvæmt ársreikningi Hafnarfjarðarbæjar sem lagður var fram í bæjarráði í gær, fyrir árið 2025 var heildarrekstrarniðurstaða samstæðunnar (A- og B-hluta) jákvæð um 49,7 milljónir. kr. sem er aðeins um 5% af því sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Þessi niðurstaða skiptist þannig á milli hluta:
- Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 1.165.163 þús. kr. (1,17 milljarðar)
- Rekstrarniðurstaða B-hluta var jákvæð um 1.214.821 þús. kr. (1,2 milljarðar)
Heildarrekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu 54,4 milljörðum kr.
Til samanburðar gerði fjárhagsáætlun með viðaukum ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 1,01 milljarð kr. fyrir samstæðuna í heild, þannig að raunniðurstaðan var mun lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Útsvar og fasteignaskatttekjur eru tæpir 34 milljarðar kr. og eru 10,3% hærri en fyrir árið 2024. Heildartekjur A- hluta eru rúmir 48.8 milljarðar og hafa hækkað um 11,8%.
Rekstrargjöld eru tæpir 25 milljarðar kr. og hækkuðu um 15,2%. Miklu munar að lífeyrisskuldbindingar meira en þrefaldast á milli ára og tæplega tvöfaldast frá uppfærðri fjárhagsáætlun.
B-hluta fyrirtækin skila miklum hagnaði
Samanlögð rekstrarniðurstaða B-hluta fyrirtækja er jákvæð um 1.214.821 þús. kr.
- Fráveita: 749,5 millj. kr. hagnaður þegar heildartekjur voru 1.177,9 millj. kr.
- Hafnarsjóður: 407,8 millj. kr. hagnaður
- Vatnsveita: 215,1 millj. kr. hagnaður þegar heildartekjur voru 468,7 millj. kr.
- Samstarfsverkefni B-hluta: 71,3 millj. kr. kr. hagnaður
- Húsnæðisstofa: Rekstrarniðurstaðan var neikvæð um 228,9 millj. kr.
Til samanburðar má nefna að rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 1.165.163 þús. kr., en þegar rekstur A- og B-hluta er tekin saman er niðurstaðan jákvæð um 49,7 milljónir kr. .
B-hluti Hafnarfjarðarbæjar samanstendur af fjárhagslega sjálfstæðum fyrirtækjum sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu sveitarfélagsins og er rekstur þeirra fjármagnaður með þjónustutekjum.
9,9 milljarða fjárfestingar
Árið 2025 námu heildarfjárfestingar samstæðunnar (A- og B-hluta) í varanlegum rekstrarfjármunum samtals 9,9 milljörðum króna. Þar af námu fjárfestingar í A-hluta 8,4 milljörðum króna og í B-hluta 1,5 milljörðum króna
- Skólar: 1.643 millj. kr. var varið til grunnskóla og 640 millj. kr. til leikskóla.
- Gatnamannvirki: Kostnaður við lóðir og framkvæmdir við götur nam 2,622 milljörðum kr., en að frádregnum innheimtum gatnagerðargjöldum var hrein fjárfesting bæjarins tæpir 1,3 milljarður kr.
- Nýja bókasafnið: 1,2 milljarður kr.
- Íþróttasvæði: Fjárfest var í Kaplakrika fyrir 1.203 milljarð kr., á Sörlastöðum fyrir 523 millj. kr. og á Ásvöllum fyrir 371 millj. kr.
- Tækniskólinn, Fornubúðir 1: 623 millj. kr.
- Ráðhúsið, Strandgötu 8-10: 213 millj. kr.
B-hluti – Fjárfestingar í B-hluta tengdust aðallega innviðum veitustofnana og félagslegu húsnæði:
- Húsnæðisskrifstofa: 522 millj. kr., aðallega vegna kaupa á íbúðum.
- Vatnsveita: 400 millj. kr. (þar af 277 millj. kr. í heimæðar og 122 millj. kr. í dælustöðvar).
- Fráveita: 298 millj. kr. í vallarræsi, dæluhús og dælur.
- Samstarfsverkefni B-hluta: 219 millj. kr. hlutdeild bæjarins í sameiginlegum verkefnum.
- Hafnarsjóður: 73 millj. kr.
Auk þess er vert að nefna að bærinn keypti eignina Óseyrarbraut 2 ásamt lóðarréttindum á árinu fyrir 265 milljónir króna, sem var fjármagnað með nýju láni.
Fjárfestingar ársins voru tæpum 2,9 milljörðum kr. meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
6 milljarðar teknir að láni
Á árinu 2025 voru tekin ný lán hjá Hafnarfjarðarbæ að heildarvirði 6.031 millj. kr.
Tekin voru ný langtímalán hjá lánastofnunum að fjárhæð 5.766 millj. kr. fyrir samstæðuna í heild (A og B hluta). Þar af námu ný lán í A-hluta 5.392 millj. kr.
Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðunnar eru rúmar 70,7 milljarðar kr. og var skuldahlutfall samstæðunnar 130% en 139% ef aðeins er horft til A-hluta. Hækkuðu skuldirnar um 2,5 milljarða kr. þrátt fyrir að greitt hafi verið 2,4 milljarðar af eldri lánum.
Skammtímaskuldir voru rúmar 10,1 milljarðar kr. og veltufjárhlutfall var 0,84 hjá samstæðunni sem bendir til þess að skammtímaskuldir séu hærri en veltufjármunir í árslok.
Veltufjármunir samstæðunnar námu 8,5 milljarðar kr. en skammtímaskuldir voru 10,1 milljarður. kr.
Þá er handbært fé A-hluta í árslok aðeins rúmlega fjórðungur af því sem það var 2024.





