Fyrir viku var mikið fjör í Firði þegar þar var haldið Sumarkvöld.
Fyrstu 100 gestirnir fengu gjafapoka og „Elvis Presley“ tryllti lýðinn.
Verslanir voru með tilboð og buðu upp á ýmislegt skemmtilegt, fyrirtæki voru með kynningar.
Fjörður er brátt að komast í endanlega mynd eftir stækkun og Kappahl, sem opnar brátt sína verslun, var með lukkuhjól. Bókasafnið mun brátt opna og þá verður Fjör í Firði.
Afhending húsnæðis Bókasafns Hafnarfjarðar
Formleg afhending var á húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar sem Hafnarfjarðarbær keypti af 220 Fjörður ehf., en flutningar eru nú hafnir.
Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri 220 Fjörður ehf. afhenti Valdimar Víðissyni táknrænan lykil sem hann afhenti svo Sigrúnu Guðnadóttur, forstöðumanni Bókasafns Hafnarfjarðar.





































