HeimFréttirSamþykkja að hefja undirbúning að sýningu um ævi og feril Björgvins Halldórssonar

Samþykkja að hefja undirbúning að sýningu um ævi og feril Björgvins Halldórssonar

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að hefja undirbúning að sýningu um ævi og feril Björgvins Halldórssonar, sem hefði orðið 75 ára í dag.

„Bærinn vill með sýningunni heiðra minningu manns sem markaði djúp spor í íslensku menningarlífi og átti einstakt samband við Hafnfirðinga,“ segir í frétt á vef Hafnarfjarðarbæjar en fundargerð bæjrráðs hefur ekki verið birt.

Björgvin var fæddur og uppalinn í Hafnarfirði, alla tíð stoltur af uppruna sínum og ávallt nátengdur bænum í gegnum tónlistina, tónleika í Bæjarbíó og fjölmörg menningarverkefni. Hann var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 og varð fyrstur til að hljóta stjörnu við Bæjarbíó – viðurkenningu sem endurspeglar þá hlýju og virðingu sem bæjarbúar báru til hans. Sýningin verður unnin í nánu samstarfi við fjölskyldu og vini Björgvins, Bæjarbíó, Byggðasafn Hafnarfjarðar og aðra fagaðila. Hugmyndin að verkefninu á sér rætur í samtölum sem þegar höfðu átt sér stað við Björgvin sjálfan og hann sýndi mikinn áhuga.

Fulltrúar allra flokka lögðu tillöguna fram og samþykktu hana.

Með þessari ákvörðun vill bæjarráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær sýna í verki þakklæti sitt fyrir ómetanlegt framlag Björgvins til tónlistar, menningar og bæjarlífsins alls. Hans er og verður sárt saknað, en arfleifð hans mun lifa áfram í hjörtum fólks og sögu bæjarins.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2