Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var haldið sl. laugardag.
Alls greiddu 1.502 skráð sjálfstæðisfólk atkvæði í prófkjörinu. Gild atkvæði voru 1.461 og 41 seðlar voru auðir og ógildir.
Fimmtán manns kost á sér í fyrstu 6 sæti listans og voru úrslit þessi:
- Skarphéðinn Orri Björnsson hlaut 754 atkvæði í 1. sæti eða 51,6% atkvæða.
- Kristín María Thoroddsen varð í öðru sæti með 670 atkvæði í 1.–2. sæti eða 45,9%
- Viktor Pétur Finnsson með 673 atkvæði í 1.–3. sæti eða 46,1%.
- Guðbjörg Oddný Jónasdóttir með 749 atkvæði í 1.–4. sæti eða 51,3%.
- Kristinn Andersen með 635 atkvæði í 1.–5. sæti eða 43,5%
- Helga Björg Loftsdóttir með 676 atkvæði í 1.–6. sæti eða 46,3%.
Leiðtogaslagurinn
Orri og Kristín voru þau einu sem stefndu á 1. sætið en í það fékk Orri 754 atkvæði en Kristín 530 atkvæði. Alls hlaut Orri 968 atkvæði en Kristín 914 atkvæði.
Mismunandi markmið
Árangur Viktors Péturs Finnssonar er athyglisverður en hann er nýr á lista flokksins en á ættir að rekja til eldra Sjálfstæðisfólks. Hann hafði stefnt á 2. sætið og má vel við una með 3. sætið.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir bauð sig fram í 2. sætið en hafnaði í 4. sæti.
Kristinn Andersen, forseti bæjarstjórnar, gaf kost á sér í 3. sæti en hafnaði í 5. sæti.
Eva Björk Harðardóttir bauð sig fram í 3. sætið
Hilmar Ingimundarson bauð sig fram í 3. sætið
Helga Björg Loftsdóttir, varabæjarfulltrúi, bauð sig fram í 3. sætið en hafnaði í 6. sæti.
Örn Geirsson bauð sig fram í 4. sætið en hafnaði í 11. sæti.
Birkir Snær Brynleifsson er 22 ára, fæddur og uppalinn Hafnfirðingur og bauð sig fram í 4.-5. sætið
Einar Páll Þ. Mathiesen bauð sig fram í 4.-5. sætið en hafnaði í 7. sæti
Kristjana Ósk Jónsdóttir bauð sig fram í 4.-6. sæti en endaði í 8. sæti.
Unnur Elín Sigursteinsdóttir bauð sig fram í 4.-6. sæti.
Þórhallur Guðmundsson bauð sig fram í 5. sæti.
Júlíus Freyr Bjarnason stefndi á eitt af 10 efstu sætum og hafnaði í 9. sæti.
Niðurstöður þeirra sem lentu neðar en í 6. sæti var að finna á samfélagsmiðlum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 4 bæjarfulltrúa í síðustu kosningum.




