Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma, á fundi í gærkvöldi.
Í tilkynningu segir að listinn sé skipaður öflugum hópi á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn og víðtæka reynslu úr bæjarmálum og atvinnulífi.
„Við finnum fyrir vaxandi stuðningi og jákvæðni í garð flokksins sem gefur góðan byr í seglin. Sjálfstæðismenn eru mættir til leiks kraftmiklir og í miklum baráttuhug,“ segir Orri Björnsson.
Úr Framsókn í Sjálfstæðisflokkinn
Margrét Vala Marteinsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem hafði ákveðið að hætti í stjórmálum, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og skipar hún 10. sæti listans. Hún hafði setið í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn frá 2022. Við þetta fjölgar bæjarfulltrúum flokksins í Hafnarfirði úr fjórum í fimm en þurfi hún að kalla inn varamann, kemur sá úr röðum Framsóknarmanna.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði 2026
- Orri Björnsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
- Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi og formaður fræðsluráðs
- Viktor Pétur Finnsson, varaþingmaður
- Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, bæjarfulltr. og form. umhverfis- og framkvæmdaráðs
- Kristinn Andersen, verkfræðingur, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
- Helga Björg Loftsdóttir, verkefnastjóri
- Einar Páll Þ. Mathiesen, hagfræðingur
- Kristjana Ósk Jónsdóttir, sérfræðingur í bókhaldi og skattaráðgjöf
- Júlíus Freyr Bjarnason, framkvæmdarstjóri/eigandi
- Margrét Vala Marteinsdóttir, bæjarfulltrúi og forstöðukona hjá búsetukjarna
- Hilmar Ingimundarson, viðskiptafræðingur
- Unnur Elín Sigursteinsdóttir, sölufulltrúi
- Örn Geirsson, umsjónamaður fasteigna
- Eva Björk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri
- Birkir Snær Brynleifsson, laganemi
- Guðjón Óskar Guðmundsson, framhaldsskólakennari
- Paula Wiszniewska, hársnyrtir
- Þórhallur Guðmundsson, viðskiptafræðingur
- Bjarni Geir Lúðvíksson, frumkvöðull
- Elsa Dóra Grétarsdóttir, eftirlaunaþegi og sérfr. í lífeyrisréttindum
- Kovan Abdulkahleq Ali, klæðskeri
- Rósa Guðbjartsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri




