Vor til vinstri og VG í Hafnarfirði hafa tilkynn sameiginlegt framboð til bæjarstjórnarkosningar í vor undir merkjum Vinstrisins.
Í tilkynningu segir að Vinstrið í Hafnarfirði byggi á þeirri sannfæringu að mikilvægt sé að styrkja rödd fólksins í bænum og stuðla þannig að réttlátari, grænni og lýðræðislegri framtíð.
„Vinstrið í Hafnarfirði er með kosningaáherslur sem taka mið af þörfum fólksins í bænum og vilja tryggja að íbúar hafi raunveruleg áhrif. Við viljum vernda rétt íbúa til heilnæms umhverfis. Við leggjum áherslu á að réttur fólks sé ávalt virtur við skipulag og rekstur sveitarfélagsins. Við viljum vinna að öruggu samfélagi þar sem gott er að búa á öllum aldri, óháð stöðu, kyni, efnahag eða uppruna.
Þau málefni sem við teljum brýnust eru húsnæðismál, skóla- og menntamál og samgöngu- og skipulagsmál. Við viljum efla fjölbreytileika og aðgengi að menningu í bænum og leggjum áherslu á umhverfismál út frá náttúruvernd en líka til að fegra umhverfi okkar. Kosningaáherslur Vinstrisins í Hafnarfirði er að nálgast öll málefni út frá grundvallarmarkmiðum um efnahagslegt og félagslegt réttlæti.“
Þau sem leiða listann eru:
- Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, MSc í stjórnun og stefnumótun, verkefnastjóri.
- Sveinn Ísak Kristinsson (Svenný Kristins), aðstoðarmaður iðjuþjálfa, tónsmiður
- Davíð Arnar Stefánsson, landfræðingur, fjallaleiðsögumaður
- Guðrún Lína Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður
- Margrét Pétursdóttir, leiðsöguman
- Anna Sigríður Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari





