Árni Rúnar Árnason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista Framsóknar í komandi sveitarstjórnakosningum í Hafnarfirði.
„Ég er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði; giftur, faðir og afi. Ég starfa sem tækjastjóri í Suðurbæjarlaug og hef starfað þar í 20 ár og hef mikla ánægju af. Því til viðbótar er ég formaður Framsóknarfélags Hafnarfjarðar og hef síðustu 7 ár verið varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðarbæjar, og síðustu 4 ár varabæjarfulltrúi og varaformaður skipulags- og byggingarráðs. Ég vil halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í Hafnarfirði á síðustu árum. Verk Framsóknar hafa náð í gegn og skilað okkur betri bæ, með meiri framkvæmdum, auknum stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur og meira bæjarlífi en áður var. Ég óska eftir tækifæri til að halda áfram á þeirri vegferð og styðja enn frekar við öflugt velferðarsamfélag í Hafnarfirði,“ segir í tilkynni gu frá Árna.





