HeimFréttirNýjar hraðhleðslustöðvar við Fjarðarkaup

Nýjar hraðhleðslustöðvar við Fjarðarkaup

Instavolt hefur opnað nýjar hraðhleðslustöðvar við Fjarðarkaup.

Þar eru nú fjórar 160 kW hraðhleðslustöðvar frá BYD sem staðsettar eru á áberandi stað við Fjarðarkaup þar sem viðskiptavinir geta nýtt tímann á meðan hlaðið er til að sinna innkaupum eða öðrum erindum.

„Við erum afar ánægð með að hafa opnað þessar stöðvar við Fjarðarkaup. Það hefur verið einstaklega gott að vinna með  eigendum Fjarðarkaupa sem hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga og viljað styðja við uppbyggingu innviða fyrir orkuskipti,“ segir Steinþór J. Gunnarsson Aspelund Rekstrarstjóri, hjá Instavolt Íslandi.

Fjarðarkaup er fimmtánda staðsetning Instavolt á Íslandi og bætir þar með enn frekar aðgengi að öflugri hleðsluþjónustu fyrir eigendur rafbíla á höfuðborgarsvæðinu. Með opnuninni rekur félagið nú alls 45 hraðhleðslustöðvar um land allt.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Instavolt leggi ríka áherslu á að vinna náið með sveitarfélögum, landeigendum og samstarfsaðilum að hraðari og skilvirkari uppbyggingu hleðsluinnviða víðs vegar um landið. Framundan séu frekari uppbygging víða um land.

Nýju hraðhleðslustöðvarnar við Fjarðarkaup eru nú þegar komnar í notkun og standa öllum rafbílaeigendum til boða.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2