Laugardagur, febrúar 21, 2026
HeimFréttirNú er loks komið að því – Hafnarfjarðarbær ætlar að ráða bílastæðavörð

Nú er loks komið að því – Hafnarfjarðarbær ætlar að ráða bílastæðavörð

Hafnarfjarðarbær hefur auglýst stöðu stöðuvarðar laust til umsóknar og er honum ætlað til að byrja með aðeins að setja miða á rúður bifreiða sem lagt er ólöglega.

Hefur tekið gríðarlegan tíma kerfinu

Bílastæðasjóður er engin nýjung og langur aðdragandi að stofnun núverandi bílastæðasjóðs er í raun hneisa fyrir bæjarstjórnir undanfarinna áratuga.

Í leiðara Fjarðarpóstsins 11. desember 2008 skrifaði þáverandi ritstjóri blaðsins, núverandi ritstjóri Fjarðarfrétta um málið, en þá hafði verið þó nokkur umræða um lélegt eftirlit með lagningu bíla:

„Ég legg til við bæjarstjórn að ákveðið verði að setja á laggirnar stöðuvörslu hér í bæ. Þetta getur skapað nokkrum atvinnu sem skussarnir borga fyrir. Ljúka þarf að setja nauðsynlega reglugerð sem átti að vera búið að fyrir löngu sem er víst forsenda eðlilegra sektarboða því ekki nennir lögreglan að sinna þessu. Stöðuverðirnir geta þá í leiðinni gengið eftir því að 2ja tíma stöðutíminn í miðbænum sé virtur þó mér finnist það vera lítilsháttar mál í samanburði við öryggi gangandi vegfarenda.“

Í Fjarðarfréttum 8. desember 2016 má lesa frétt um að kynnt hafi við drög að samþykktum fyrir Bifreiðastæðasjóð Hafnarfjarðar. Í þeim stóð m.a.: „Til bifreiðastæðasjóðs skulu renna tekjur af stöðumælum og leigu stöðu­reita, aukastöðugjald og önnur gjöld vegna stöðubrota. Til sjóðsins renna enn­fremur tekjur af leigu bifreiðastæða jafnt úti sem í sérstökum bifreiðastæða­húsum, sem leigð eru til lengri eða skemmri tíma. Þá fær sjóðurinn tekjur af greiddum bifreiðastæðagjöldum, þegar húsbyggjendur greiða bifreiða­stæðagjöld skv. sérstakri samþykkt þar um. Ennfremur getur verið um að ræða framlög úr bæjarsjóði eða lántökur með ábyrgð bæjarsjóðs eða tryggðar með veði í mannvirkjum, sem bókfærð eru hjá bifreiðastæðasjóði.“

Þessi sjóður var svo stofnaður 2017 en fyrir handvömm gleymdist að auglýsa stofnun hans í B-tíðindum Stjórnartíðinda. En það var svo ekki fyrr en í maí 2025 sem á ný var stofnaður Bílastæðasjóður.

Auglýst eftir stöðuverði

Nú er loks verið að auglýsa eftir stöðuverði, já í eintölu en 29. janúar birtist á vefsíðu bæjarins tilkynning þar sem Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir stöðuverði.

Þar segir að Hafnarfjarðarbær hafi stofnað bílastæðasjóð til að taka á stöðubrotum í bænum.

  • Hlutverk stöðuvarðar verður að finna þá bíla sem lagt er ólöglega og tryggja að bílar sem lagt er til lengri tíma, jafnvel dögum saman í miðbænum, séu færðir.
  • Einnig að hafa upp á númerslausum ökutækjum á bæjarlandinu og að koma upplýsingum um þau ökutæki til viðeigandi aðila.

Ekki er verið að leggja gjaldskyldu á bílastæði bæjarins. Aðeins er verið að tryggja öryggi og að bílum sé ekki lagt þar sem þeir eiga ekki að vera.

Ekki sektað strax

Til að byrja með verða aðvörunarmiðar settir á rúður bíla sem lagt er ólöglega, „svona til að venja okkur við þessar breytingar og gefa tækifæri til að breyta rétt“ eins og segir í tilkynningunni. Þá segir að með tímanum, þegar þekking og reynsla sé komin í verkið, verði sektað.

Ekki kemur fram hvenær byrjað verður að sekta, svo bíleigendur geta rólega lagt ólöglega þangað til, nema lögreglan taki upp á því að sekta, sem gerist þó ekki oft en hefur gerst frekar nýlega þegar bílum var lagt öfugt við akstursstefnu.

Meðal verkefna stöðuvarðar verður að passa að rútum, vörubifreiðum, stórvirkum vinnuvélum og þess háttar tækjum sé ekki lagt í götum bæjarins án eftirlits. Slíkt getur skapað slysahættu auk þess sem þessi farartæki nýta bílastæði sem íbúar í hverfinu gætu annars nýtt.

Í Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar er kveðið á hvar ekki má leggja ökutækjum.

  • Samþykkt um Bílastæðasjóð Hafnarfjarðar má sjá hér.
  • Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar má sjá hér en um ökutæki má lesa um í 3. kafla.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2