HeimFréttirMyndarleg Mandarín önd vakti mikla athygli á Læknum

Myndarleg Mandarín önd vakti mikla athygli á Læknum

Fuglaljósmyndarar fjölmenntu að Læknum í Hafnarfirði síðustu daga til ná mynd af glæsilegri mandarínönd sem þar spókaði sig – að vísu aðeins þegar henni, eða honum þar sem þetta var karlfugl, hentaði.

En þarna voru ekki aðeins ljósmyndarar, bæjarbúar komu líka að skoða þessa fallegu önd.

Þegar blaðamann Fjarðarfrétta bar að garði var heldur rólegt yfir ljósmyndurunum og löngu linsurnar voru flestar í hvíldarstöðu. Mandarínöndin hafði komið sér fyrir undir tré á hólma í læknum, í góðum skugga. Líklega hefur öndin villst með veðri frá Bretlandseyjum og kannski orðin vön kulda þar. Og ekki nóg með það að hún væri þarna í skugganum, heldur hafði hún hniprað sig saman og sást aðeins búkurinn.

Hér glittir í öndina á miðri mynd en þarna var hún ekki í neinum fyrirsætuhugleiðingum.

En þolinmóðir fengu að uppskera því ljósmyndarar náði glæsilegum myndum af öndinni og einn af þeim var heimamaðurinn Trausti Baldursson, sem er áhugafuglaljósmyndari en þó ekki með stærstu linsurnar.

Mandarínönd á Læknum – Ljósmynd: Trausti Baldursson.

Mandarínönd er meðalstór trjáönd ættuð úr Austur-Asíu og var einu sinni útbreidd í heimkynnum sínum en hefur fækkað mikið vegna útflutnings og eyðingar skóglendis. Fuglar í fuglasöfnum sleppa oft út í náttúruna og hafa tímgast þar. Þannig er núna töluverður fjöldi varpfugla út í náttúrunni í Bretlandi og nokkuð margir í görðum í Dublin á Írlandi.

Mandarínönd á Læknum – Ljósmynd: Trausti Baldursson.
Mandarínönd á Læknum – Ljósmynd: Trausti Baldursson.

Öndin er 41 – 49 cm löng með 65-75 cm vænghaf. Karlfuglinn er afar litskrúðugur og þekkist auðveldlega. Hann hefur rauðan gogg, stóra hvítar flekki yfir auga og rauðleitt andlit. Brjóstið er fjólublátt með tveimur lóðréttum röndum og á bakinu eru tvo appelsínugul „segl“.

Stóru linsurnar biðu betra tækifæris en á þessari stundu sem myndin var tekin.
Þessa skemmtilegu mynd af mandarínönd og smakka á pítsusneið tók Ómar Smári Ármannsson.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2