Nemendur í 10. bekk í Setbergsskóla sýndu nú um helgina söngleikinn Footloose sem byggður er á samnefndri kvikmynd.
Á forsýningu sl. fimmtudag, blómstruðu nemendurnir og hafa greinilega nýtt tímann vel við undirbúning.
Söguþráðurinn
Unglingurinn Aron Hansson, sem Reynir Örn Sigrúnarson leikur, flytur með einstæðri móður sinni í lítinn smábæ, þar sem dans og hávær tónlist eru bönnuð eftir sorglegt slys. Aron á erfitt með að aðlagast, lendir fljótt upp á kant við yfirvöld og íhaldssama íbúa en kynnist Evu, fjörugri og uppreisnargjarnri dóttur bæjarprestsins, sem leikin er af Emilíu Dröfn Davíðsdóttur. Presturinn Kristófer, sem leikinn er af Lazar Velemir, stendur að banninu og virðist stjórna öllu í bænum. Hann á í vandræðum með samskipti við dóttur og prestfrúin, Vera, sem leikin er af Heiðu Helgu Valgeirsdóttur, reynir að miðla málum.
Unglingarnir í bænum eru eldfjörugir þó þeir hafi aðlagað sig að banninu en undir niðri ólgar eitthvað.
Aron ákveður að berjast fyrir frelsi unglinganna til að halda dansleik. Eva sýnir honum biblíutilvísanir sem styðja að dans sé ekki syndsamlegur, og í gegnum átök, vináttu og áhrifaríkt samtal við prestinn tekst honum að brjóta niður bannið og hjálpa bænum að finna gleðina aftur.
Síðustu til að kyngja því að ball sé haldið er skólastjórinn Hinrik, sem leikinn er af Halldóri Magnúsi Guðbjartssyni, sem jafnframt sýndi flotta takta á gítar, og Toni, skúrkurinn og fyrrum kærasti Evu, en Toni er leikinn af Baldri Samir Hasan.

Stór leikhópur
Fjölmargir leikarar eru í sýningunni sem er byggð á sýningu sem var í Borgarleikhúsinu en aðlöguð að hópnum og aðstæðum svo úr varð hin ágætasta skemmtun.
Sýningin hefur verið í undirbúningi síðustu mánuði og hafa krakkarnir sjálfir og foreldrar komið að öllu ferlinu: leik, söng, dansi, sviðsmynd, búningum og tæknivinnu.
Það er greinilega góð samstaða í hópnum sem endurspeglaðist í sýningunni og krakkarnir voru ófeimnir við að stíga fram fyrir áhorfendur og syngja erfið lög og létu ekkert á sig fá þó einhverjir hnökrar væru á enda hvorki lærðir söngvarar né leikarar. Krakkarnir hreinlega blómstruðu á sviðinu.
Leikstjórar
Þær Guðrún Heiða Sigurgeirsdóttir og María Gunnarsdóttir, kennarar við skólann, eiga heiður skilinn fyrir aðkomu sína að árlegum uppsetningum á söngleikjum í skólanum en þær stýrðu undirbúningnum og leikstýrðu Footloose.
Helstu hlutverk
Aron: Reynir Örn Sigrúnarson
Eva: Emilía Dröfn Davíðsdóttir
Sara: Þórunn Saga Björgvinsdóttir
Mikki: Mikael Máni Laufdal Sigurðsson
Toni: Baldur Samir Hasan
Séra Kristófer: Lazar Velemir
Vera, mamma Evu: Heiður Helga Valgeirsdóttir
Bettý: Katrín Líf Sigurðardóttir
Ellen, mamma Arons: Thelma Rós Tómasdóttir
Hinrik skólastjóri: Halldór Magnús Guðbjartsson
Georg íþróttakennari: Andri Jón Ágústsson
Helena: María Högnadóttir
Ef nefna má önnur hlutverk aukahlutverk, þá er það í raun rangnefndi því allir höfðu hlutverk sem skipti máli fyrir sýninguna og gerðu sýninguna að því sem hún er.
Krakkarnir geta aldeilis gengið stolt frá þessum sýningum.















































