fbpx
Fimmtudagur, nóvember 7, 2024
target="_blank"
HeimFréttirMenning og mannlífÆrslabelgur verður á ÓlaRunstúni

Ærslabelgur verður á ÓlaRunstúni

Svokallaður ærslabelgur verður settur upp á ÓlaRunstúni í sumar en íbúar í grenndinni hafa kallað eftir því að aðstaðan á túninu verði bætt.

Ærslabelgur er uppblásinn belgur sem hægt er að hoppa og leika sér á en slíkur belgur var settur upp á Víðistaðatúni sl. sumar og hefur líkað vel. Er hann tímasettur þannig að loft er í honum daglega kl. 9-22.

Stýrihópur Heilsubæjarins Hafnarfjörður lagði til á fundi sínum í dag að ærslabelgur verði keyptur og settur upp á ÓlaRunstúni núna í sumar.

Vonir standa til þess að framkvæmdin geti hafist á næstu vikum.

Ærslabelgurinn á Víðistaðatúni

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2