Listi Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur á opnum félagsfundi í morgun.
Eins og við var búist leiðir Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar listann.

Á listanum eru þessi:
- Guðmundur Árni Stefánsson
- Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi
- Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Samfylkingarinnar
- Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur
- Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi og prestur
- Hekla Sóley Arnardóttir, þroskaþjálfi
- Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, félagsmálafulltrúi hjá Hlíf
- Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla
- Jón Grétar Þórsson, starfsmaður í félagsþjónustu
- Auður Brynjólfsdóttir stjórnmálafræðingur
- Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits.
- Hrund Biering Valsdóttir, eftirlit og verkefnastýring á Verkfræðistofur Reykavíkur
- Árni Freyr Ársælsson, deildarstjóri hjá Rafal.
- Jóhanna Ósk Maríudóttir Nielsen, sálfræðingur
- Sigurður Þórður Ragnarsson, jarðvísindamaður
- Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
- Valdimar Aðalsteinsson, háskólanem
- Sonja Magnúsdóttir, eigandi Fitnesssport
- Ragnar Már Jónsson, saxófónleikari og tónlistarkennari
- Sigrid Foss, eftirlaunaþegi
- Tryggvi Rafnsson, leikari og verkefnastjóri
- Valgerður M. Guðmundsdóttir, fv. bæjarfulltrúi
Þau Elín Anna, Hekla Sóley, Margrét Lilja og Óskar Steinn eru ný á lista.
Hildur Rós var í síðustu kosningum í 4. sæti en tekur 2. sæti Sigrúnar Sverrisdóttur, sem flutti úr bænum og Elín Anna tekur hennar sæti.
Meðalaldur fólks á listanum er 44 ár og er jafnt kynjahlutfall. 13 af 22 voru ekki á listanum fyrir síðustu kosningar.




