Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Á síðasta ári voru um 17 þúsund virkir þátttakendur í samtals um 500 skólum og vinnustöðum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er. Lífhlaupið er góð byrjun á hreyfingu fyrir lífstíð.
Lífshlaupið hefst 5. febrúar. Opnað hefur verið fyrir skráningu á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.
Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:
- Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. – 18. febrúar.
- Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. – 18. febrúar.
- Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. – 25. febrúar.
- Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.
Helstu dagsetningar í Lífshlaupinu 2020
- 4. febrúar – Lífshlaupsárinu 2019-2020 lýkur í einstaklingskeppninni.
- 5. febrúar – nýtt Lífshlaupsár hefst í einstaklingskeppninni
- 5. febrúar – vinnustaða-, grunn- og framhaldsskólakeppnin hefst með setningarhátíð í Skarðshlíðarskóla
- 18. febrúar – grunn- og framhaldsskólakeppninni lýkur
- 19. febrúar – leyfilegt er að breyta starfsmannafjölda vinnustaða til og með 19. febrúar
- 25. febrúar – vinnustaðakeppninni lýkur
- 27. febrúar – skráningu hreyfingar í öllum keppnum lýkur kl. 12:00
- 28. febrúar – Verðlaunaafhending