Föstudagur, febrúar 6, 2026
HeimFréttirKjósum árangur áfram fyrir Hafnarfjörð

Kjósum árangur áfram fyrir Hafnarfjörð

Kristinn Andersen skifar

Framundan er prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði þar sem bæjarbúum gefst kostur á að velja fulltrúa á framboðslista okkar fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Ég gef þar kost á mér áfram í 3. sæti og legg þar með mér reynslu mína og áherslur fyrir framboðslistann í vor.

Traust fjármálastjórn

Ég legg áherslu á ábyrga fjármálastjórn bæjarins og hagkvæman rekstur áfram. Okkur hefur tekist að halda niðri álagningu útsvars og draga úr hækkun fasteignaskatta þegar fasteignamat ríkisins hefur hækkað. Markmið mitt er að fólk og fjölskyldur í Hafnarfirði njóti enn frekar góðs af hagsýni í rekstri bæjarins, með minni álögum.

Samgöngur og innviðir

Brýnt er að leysa úr þeim hnútum sem orðnir eru í samgöngum til og frá Hafnarfirði. Ein lína í samgöngum dugir þar ekki til, heldur þurfum við jafnframt að horfa til þess að akbrautir séu skipulagðar þannig að fólk geti farið ferða sinna eftir þörfum og aðstæðum hvers og eins. Við eigum áfram að tryggja góðar og öruggar aksturleiðir í bænum, greitt aðgengi og aðkomu bifreiða þar sem þess er þörf. Mikilvægt er að sinna áfram uppbyggingu og viðhaldi annarra innviða í Hafnarfirði, skóla og útivistarsvæða, svo og annarra mannvirkja bæjarins.

Menntun og skólamál

Skólamál eru einn mikilvægasti þátturinn í þjónustu bæjarins. Skólastarf hér í Hafnarfirði hefur gengið vel og tekist hefur að finna úrræði og lausnir þar sem þurft hefur. Mikilvægt er að missa ekki sjónar á einu meginmarkmiði skólanna, sem er að veita börnum og ungmennum trausta menntun og færni fyrir framtíð þeirra. Ég legg áherslu á að við styðjum skólana okkar og foreldra til að finna og hagnýta þær aðferðir sem reynast hverjum og einum best í námi og þroska.

Mannlífið í öllum sínum fjölbreytileika

Hafnarfjörður er bæjarfélag með fjölbreytt og ríkt mannlíf. Ég vil að allir finni að hér sé hugað að þörfum þeirra og tækifærum til farsældar á eigin forsendum. Það er mikilvægt að í Hafnarfirði sé áfram lögð áhersla á íþróttir og menningu, tækifæri ungra sem aldinna – mannlífið í öllum sínum fjölbreytileika.

Menntun mín og áralöng starfsreynsla er á sviði verkfræði og nýsköpunar í atvinnulífinu, auk starfa minna í bæjarstjórn og áralangra góðra samskipta og samtals við bæjarbúa. Ég hef notið trausts sem forseti bæjarstjórnar og beitt mér fyrir árangursríku og farsælu starfi á þeim vettvangi. Ég óska nú eftir endurnýjuðu umboði Hafnfirðinga til að nýta áfram þá reynslu í hópi okkar sjálfstæðismanna og skipa áfram 3. sæti framboðslistans okkar í prófkjörinu á laugardag.

Höfundur er verkfræðingur og forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2