Í nóvember árið 2024, stefndi Verkalýðsfélagið Hlíf Hafnarfjarðarbæ, vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanns sem hafði verið ráðinn í tímavinnu og starfaði samkvæmt ráðningarsamningi frá 20. september 2019, þar til í júlí 2024.
Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm þann 24. júní s.l. þar sem Hafnarfjarðarbæ er gert að greiða stefnanda persónuuppbætur aftur í tímann, auk málskostnaðar. Hafnarfjarðarbær áfrýjaði dómnum til Landsréttar, Landsréttur ákvað að taka málið ekki fyrir.
Eyþór Árnason, formaður Hlífar segir að á grundvelli dómsins eigi þeir starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sem starfa í tímavinnu og eftir kjarasamningi SGS og SÍS, en hafa ekki fengið greiddar persónuuppbætur rétt á því að fá greiddar persónuuppbætur á tímabilinu 1. desember 2020 til marsloka 2024.
Fengu þau svör frá bænum að hann telji dóminn rangan
„Þrátt fyrir þetta, hefur Hafnarfjarðarbær ákveðið að fara ekki að dómnum varðandi annað starfsfólk í sömu stöðu. Félagið hefur fengið þau svör frá bænum að hann telji dóminn rangan og ætli þess vegna ekki að una honum. Það væri undarlegt samfélag ef þegnarnir færu einungis að þeim dómum sem þeir telja rétta, en leiddu þá hjá sér sem þeir eru ósammála,“ segir Eyþór.
Hann segir Verkalýðsfélagið Hlíf eigi því ekki annarra kosta völ, en að leita uppi það fólk sem eins kann að vera ástatt um, þ.e. að hafa verið á tímavinnusamningi, en ekki fengið greiddar persónuuppbætur eins og dómurinn kveður á um að skuli vera.
„Við munum fara með mál hvers og eins á sama hátt og málið sem dómur er fallinn í. Við teljum engar líkur á því að dómurinn skipti um skoðun þegar önnur sambærileg mál eru tekin fyrir, þannig að líklegt verður að telja að Hafnarfjarðarbær þurfi að greiða talsverða fjármuni vegna þessa, ekki vegna þess sem við teljum bæinn skulda viðkomandi einstaklingum, heldur einkum vegna málskostnaðar, sem slagaði hátt í milljón í því máli sem lokið er.
Að sögn Eyþórs hljóti það að teljast tíðindi að þriðja stærsta sveitarfélag landsins telji sig ekki þurfa að fylgja leiðsögn dómstóla. „Annars endurspeglar þetta þá auknu hörku í garð almenns launafólks sem við teljum okkur verða vör við hjá Hafnarfjarðarbæ og mannauðsdeildinni. Sífellt fleiri mál, sem okkur þykja liggja í augum uppi, eru ekki leyst fyrr en félagið er komið með lögfræðinga í að sinna þeim,“ segir Eyþór.
Auglýst eftir fleirum
Verkalýðsfélagið Hlíf kallar eftir því að Hlífarfólk sem hefur unnið samkvæmt tímavinnusamningum á tímabilinu frá 1. desember 2020 til marsloka 2024 og ekki fengið greiddar persónuuppbætur að gefa sig fram við félagið, í síma 510 0800, eða með tölvupósti á hlif@hlif.is.




