fbpx
Fimmtudagur, apríl 18, 2024
target="_blank"
HeimFréttirHafnarfjarðarbær gefur milljón krónur til Grænlands

Hafnarfjarðarbær gefur milljón krónur til Grænlands

Bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að veita styrk að upphæð 1.000.000.- til verkefnisins Vinátta í verki. Verkefni og söfnun kemur til vegna flóðbylgju sem skall á grænlenska þorpinu Nuugattsiaq aðfararnótt sunnudagsins 18. júní og varð til þess að fjórir fórust og ellefu hús eyðilögðust m.a. rafveita þorpsins, verslun þess og grunnskóli.

Eins og fram kemur í beiðni frá landsöfnuninni til sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga þá eru Grænlendingar næstu nágrannar Íslendinga og djúp vinátta milli þjóðanna. Einn skýrasti vottur þess, er að Grænlendingar efndu til landssöfnunar þegar snjóflóðið mikla féll á Flateyri 1995. Markmið með verkefninu er m.a. að senda Grænlendingum sterk skilaboð um að þeir geti ávallt treyst á Íslendinga. Grænlendingar eru djúpt snortnir yfir hlýhug, vináttu og stuðningi Íslendinga og Færeyinga vegna þessa. Með framlagi sínu vill Hafnarfjarðarbær senda Grænlendingum skýr og kærleiksrík skilaboð um samstöðu og vináttu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2