Skátar drógu fána að hún snemma í morgun í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Fjölmenni mætti svo í skrúðgöngu sem hófst kl. 13 við Flensborgarskóla og sífellt bættist við hana. Skátar gengu með fánaborg á undan og Lúðrasveit Hafnarfjarðar hélt uppi stemmningunni. Gengið var niður Hringbraut og þaðan eftir Lækjargötu og Strandgötu.
Hátíðarhöldin voru á nokkrum stöðum, leiksvæði fyrir börn voru á Hörðuvöllum en þar voru hátíðarhöldin oft á síðustu öld, matarvagnar voru á Thorsplani en aðal hátíðarhöldin voru á Ráðhústorginu en það er torgið framan við Ráðhús bæjarins. Ekki voru allir að átta sig á því og stöðvaðist skrúðgangan við Thorsplan en láðst hafði að upplýsa félaga í Lúðrasveitina um breytt plön. Fólk var reyndar fljótt að átta sig og brátt fylltist Ráðhústorgið.

Að venju söng Karlakórinn Þrestir og fjallkonan að þessu sinni var Gunnhildur Sigurðardóttir, fv. hjúkrunarforstjóri á Sólvangi en Sólvangur fagnar 100 ára afmæli á árinu. Nýi bæjarstjórinn flutti ávarp og sagði m.a. að Hafnarfjörður væri besti bær í heimi. Hann er þó búandi sjálfur í vesturbæ Reykjavíkur. Ýmislegt fleira var á dagskránni og dreifðist mannfjöldinn víða um miðbæinn enda vart hægt að hugsa sér betra veður.
Ljósmyndari Fjarðarfrétta tók eitthvað af myndum sem sjá má hér:










































































