Guðbjörg Oddný Jónasdóttir bæjarfulltrúi og formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði þann 7. febrúar.
Í tilkynningu segir að Guðbjörg búi yfir víðtækri reynslu af bæjarmálum. „Sem formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, ásamt menningar- og ferðamálanefnd hefur hún sýnt í verki metnað sinn og kraft í þágu bæjarfélagsins. Hún leggur ríka áherslu á að byggja á þeim góða árangri sem náðst hefur í Hafnarfirði undir forystu Sjálfstæðisflokksins undanfarin 12 ár,“ segir í tilkynningunni.
„Hafnarfjörður er bærinn minn og ég er afar stolt af þeim uppgangi og blómstrandi menningarlífi sem við í meirihlutanum höfum unnið að saman. Ég vil fá tækifæri til að halda áfram þessari vegferð; að tryggja öfluga innviði og einfalda líf fjölskyldna í bænum okkar,“ segir Guðbjörg.
„Guðbjörg hefur verið mjög virk í starfi Sjálfstæðisflokksins um árabil. Hún situr í stjórn fulltrúaráðsins í Hafnarfirði, er varaformaður Landssambands sjálfstæðiskvenna og situr í málefnanefnd flokksins um umhverfis- og samgöngumál. Samhliða kjörnum störfum starfar hún sem samskiptastjóri hjá Benchmark Genetics og er með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum og BA í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði.
Með Guðbjörgu í 2. sæti fær flokkurinn öflugan og reynslumikinn fulltrúa sem þekkir starfsemi og innviði bæjarins út og inn. Guðbjörg er gift Gísla Má Gíslasyni, hagfræðingi, og eiga þau þrjú börn,“ segir í tilkynningunni.





