fbpx
Fimmtudagur, apríl 25, 2024
HeimFréttirGleðilega jólahátíð!

Gleðilega jólahátíð!

Gleðileg jól kæru lesendur.

Eum leið og við kveðjum pappírinn vil ég þakka ykkur, kæru lesendur, auglýsendur og allir sem hafa verið með í að gera Fjarðarfréttir að lifandi blaði, fyrir ánægjulegt samstarf.

Framundan er ævintýri, en með góðu samstarfi við ykkur tekst vonandi að gera fréttavefinn Fjarðarfréttir að lifandi fréttavef þar sem allt, sem tengist Hafnarfirði og Hafnfirðingum, á einhvern hátt, verður í hávegum haft.

Frásagnir, fréttaskot, ábendingar um efni, tillögur að kynningum, tilkynningar um atburði og annað sem erindi á í svona fréttavef er vel þegið. Þeir sem áhuga hafa á samstarfi eða pistlaskrifum eru velkomnir í kaffispjall.

Megi jólahátíðin verða til þess að færa birtu og yl í líf þitt og þinna.

Guðni Gíslason,
ritstjóri

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2