Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf. hefur óskað eftir leyfi og samstarfi Hafnarfjarðarhafnar til þess að klippa niður minni flotkví fyrrtækisins á lóð sinni á Óseyrarbraut 31.
Yrði grjótgarður rofinn og grafinn skurður til að gera mögulegt að fleyta flotkvínni inn í skurðinn á stórstraumsflóði.
Garðurinn yrði svo lagður hafist yrði hand við að klippa flotkvínna. Allt stál sem fellur til mun svo vera útskipað beint frá lóð fyrirtækisins. Ekkert asbest, olíur eða önnur skaðleg efni eru sögð vera í flotkvínni svo mengunarhætta á að vera í lágmarki.
Segja forsvarsmenn VOV, erindið áriðandi, ástand flotkvíarinnar sé ekki gott og því vilji fyrirtækið ekki fara inn í veturinn með flotkvínna á floti.
Flotkvíin er byggð á fyrri hluta síðustu aldar, hnoðuð saman og kom til Hafnarfjarðar 1995. Var hún fyrst um sinn við bryggju rétt hjá þar sem Hafrannsóknarstofnun er núna en síðar var gerð aðstaða fyrir hana og stærri flotkví, sem kom 1998.





