Framsóknarflokkurinn er ótvíræður sigurvegari kosninganna í Hafnarfirði, bætti við sig einum manni og orðinn jafn stór Sjálfstæðisflokknum með 3 bæjarfulltrúa.
Persónufylgi Valdimars Víðissonar, oddvita Framsóknar var greinilega orsakavaldurinn í að Framsókn bætti óvænt við sig manni á sama tíma og Framsókn var að tapa annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Er þetta 77% meira fylgi en í síðustu kosningum en þá jók flokkurinn fylgi sitt um 71% með Valdimar í fyrsta sinn í brúnni.
Að sama skapi kom fylgistap Sjálfstæðisflokksins ekki mjög á óvart ef mið eru tekin af skoðanakönnunum, en það vekur athygli fyrir það að á sama tíma var Sjálfstæðisflokkurinn að bæta verulega við sig annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hlýtur að valda áhyggjum hjá nýjum oddvita flokksins. Flokkurinn tapar um 10% frá síðustu kosningum en þá tapaði flokkurinn 11% af sínu fylgi og missti einn bæjarfulltrúa.
Viðreisn tvöfaldaði fjölda bæjarfulltrúa sinna, úr einum í tvo, sem var í takt við skoðanakannanir. Jóks hlutfallslegt fylgi flokksins um 57%.
Miðflokkurinn náði inn manni sem var líka samkvæmt skoðanakönnunum og jók flokkurinn fylgi sitt rúmlega fjórfalt frá síðustu kosningum þegar flokkurinn bauð fram í fyrsta sinn.
Afhroð Samfylkingarinnar var ekki alveg fyrirséð þó allt benti til þess að hún myndi tapa fylgi, en ekki svona miklu. Þó voru vísbendingar um að óánægja væri með oddvitann Guðmund Árna Stefánsson. Tapaði flokkurinn 39% af fylgi sínu frá síðustu kosningum en þá jók flokkurinn fylgi sitt um 50%.
Vinstrið náði ekki inn manni, fékk 11,2% fylgi og 684 atkvæði en 11 maður inn var 2. bæjarfulltrúi Viðreisnar með 1.102 atkvæði á bak við sig.

Guðmundur Árni hættir
Guðmundur Árni Stefánsson hefur tilkynnt að hann bæri ábyrgð á þessari slöku útkomu Samfylkingarinnar og hefur tilkynnt að hann ætli ekki að taka sæti í bæjarstjórn.
því tekur Hildur Rós Guðbjarnardóttir við sem oddviti flokksins en hún var fjórði og síðar þriðji bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili.
Réttlát skipting
d‘Hondt reiknireglan sem notuð er til að úthluta sætum í sveitarstjórnum hyglir almennt stóru flokkunum.
Skv. d‘Hondt reglunni er fyrsti fulltrúi valinn eftir hæsta fylgi hvers flokks, síðan er deilt í heildartölu hvers flokks með 2 upp í 11 og hæsta talan notuð til að ákvarða fulltrúana eins og sjá má á töflunni hér að ofan.
Ef hlutfallslegt fylgi flokkanna er hins vegar skoðað og fjöldi sæta í bæjarstjórn reiknað eftir því yrði útkoman réttlátari.
Í síðustu kosningum fengu t.d. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking 4 bæjarfulltrúa en hefði í raun aðeins átt að fá 3 hvor. Sjálfstæðisflokkur fékk 30,7% fylgi og sem hlutfall af 11 er það 3,37 bæjarfulltrúar og Samfylkgin 29% sem gæfi 3,19 bæjarfulltrúa. En Píratar fengu 6,1% fylgi sem gæfi 0,67 bæjarfulltrúa og Vinstri græn fengu 4,3% atkvæði sem gæfi 0,47 bæjarfulltrúa og hefðu þeir átt að fá einn bæjarfulltrúa hvor en fengu ekki.
Ef hlutfallslegt fylgi réði fjölda bæjarfulltrúa væri niðurstaðan í ár þessi:
D = 3,047 bæjarfulltrúar – 3
B = 2,673 bæjarfulltrúar – 3
S = 1,958 bæjarfulltrúar – 2
C = 1,573 bæjarfulltrúar – 2
M = 1,254 bæjarfulltrúar – 1
A = 0,484 bæjarfulltrúar – 0
Þarna fær Viðreisn (C) sinn annan fulltrúa á 0,574 sem er hærri tala en 0,484 sem fulltrúi Vinsrisins (A) fær.

Meirihlutaviðræður
Hægt er að mynda mismunandi meirihluta en líklegast er að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur haldi áfram samstarfi en viðræður eru þegar í gangi milli þeirra.
Ekki er hægt að mynda meirihluta án annars hvors þessara flokka.
Mögulegir meirhlutar:
- B + D
- B + C + M
- B + S + M
- D + C + M
- D + S + M
Auk þess er hægt að mynda aukinn meirihluta og að sjálfsögðu þarf ekki að mynda meirihluta, frekar en í stjórnum fyrirtækja eða félaga.




