fbpx
Þriðjudagur, apríl 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirFramkvæmdir við húsnæði Lífsgæðaseturs St. Jó. halda áfram

Framkvæmdir við húsnæði Lífsgæðaseturs St. Jó. halda áfram

Ragnheiður Agnarsdóttir er nýr verkefnastjóri

Næstu skref í uppbyggingu á Lífsgæðasetri St. Jó voru mörkuð á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar sl. miðvikudag þegar samþykkt var að klára framkvæmdir utanhúss í sumar auk þess að bæta aðgengi og lagfæra handrið í stigahúsi innanhúss. Þann 5. september nk. er eitt ár liðið frá því að Lífsgæðasetur St. Jó var opnað á 2. hæð í húsinu og eru öll rými þar í útleigu. Hafnarfjarðarbær festi kaup á 85% hlut ríkisins í húseigninni við Suðurgötu 41 sumarið 2017 sem áður hýsti St. Jósefsspítala en bærinn átti sjálfur 15%.

Nýjar tillögur að endurbótum og uppbyggingu rekstrar

Ragnheiður Agnarsdóttir

Ragnheiður Agnarsdóttir var á vormánuðum ráðin inn tímabundið sem verkefnastjóri og ráðgjafi fyrir reksturinn á lífsgæðasetrinu og hefur hún síðustu vikur unnið að kortlagningu möguleika fyrir skynsama uppbyggingu rekstrar í húsnæðinu. Ragnheiður hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu bæði sem ráðgjafi og stjórnandi.

Ragnheiður kynnti hugmyndir sínar og drög að tillögum á fundi bæjarráðs í vikunni. Tillögurnar snúa m.a. að því að stofnað verði sérstakt félag sem mun eiga og sjá um rekstur á húsinu og að leitað verði tilboða í þær framkvæmdir sem ráðast þarf í til að koma öllu húsnæðinu í notkun. Biðlisti er eftir rýmum til leigu í húsnæðinu í dag og eru góðar líkur á því að fljótt tækist að fullnýta húsið yrði það klárað. Ráðgert er að vinnuhópar á vegum sveitarfélagsins muni nú í sumar vinna að tiltekt og þrifum með það að markmiði að gera húsið tilbúið fyrir frekari framkvæmdir sem stefnt er á að hefjist síðsumars.

Allar upplýsingar um núverandi þjónustu í Lífsgæðasetri St. Jó er að finna hér: www.stjo.is/tjonustuadilar

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2