Kafli á Flóttamannaveginum (410), á móts við Urriðaholtsstræti verður lokarður frá og með mánudeginum 20. apríl til föstudagsins 15. maí.
Er það vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á mótum Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis svo unnt sé að ljúka framkvæmdunum á öruggan hátt fyrir sumarið. Lokað verður sunnanmegin við afleggjarann að Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi og norðanmegin við afleggjarann að Heiðmörk.
Ekki verður hægt að aka í gegnum svæðið á meðan lokunin stendur yfir sem þýðir að ekki verður unnt að aka þessa leið milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Hægt verður að aka að golfvellinum frá Hafnarfirði og inn í Heiðmörk frá Garðabæ.
Auk hringtorgsins er unnið að vegtengingum og göngustígum, en framkvæmdir þessar munu bæta umferðaröryggi og ekki síst bæta aðgengi fyrir Urriðaholtið.
Hjáleiðir verða merktar og upplýsingaskilti sett upp við Kaldárselsveg og Vífilsstaðaveg.





