fbpx
Föstudagur, október 4, 2024
HeimFréttirFaðir 10 ára stúlku grunaður um að hafa orðin henni að bana

Faðir 10 ára stúlku grunaður um að hafa orðin henni að bana

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 24. september að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Er þetta gert í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Maðurinn er faðir áðurnefndrar stúlku, sem var 10 ára, og er hann grunaður um að hafa orðið  henni að bana.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Maðurinn hringdi sjálfur í Neyðarlínuna til að komast í samband við lögreglu, en hann var í byrjun óljós um bæði atvik og staðsetningu. Eftir nokkra stund fékkst skýrari mynd af málinu og þá um leið voru viðbragðsaðilar sendir á staðinn, sem reyndist vera í hrauninu gegnt Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg.

Þar var maðurinn handtekinn á sama tíma og leitað var að stúlkunni, en hún fannst skammt frá. Strax voru hafnar endurlífgunartilraunir, en þær báru því miður ekki árangur og var stúlkan úrskurðuð látin á vettvangi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2